355. fundur

355. fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn þriðjudaginn 11. apríl 2023 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Friðrik Már Sigurðsson, Formaður

Birkir Snær Gunnlaugsson, varaformaður

Óskar Már Jónsson

Guðný Helga Björnsdóttir

Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir boðaði forföll og ekki náðist að fá varamann í hennar stað.

Starfsmenn

Bogi Magnusen Kristinsson 

Elísa Ýr Sverrsidóttir

Fundargerð ritaði: Elísa Ýr Sverrisdóttir.

1. Hvammstangabraut 10, umsókn um breytingu á notkun. - 2303010

Húnaþing vestra sækir um að Hvammstangabraut 10 F2133940 verði skráð sem íbúðarhúsnæði í stað iðnaðarhúsnæðis.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja breytta notkun á Hvammstangabraut 10. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

2. Grundartún 8, umsókn um byggingarleyfi. - 2303012

Elías Guðmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir 123,1 m² einbýlishúsi á Grundartúni 8.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja byggingarleyfi á Grundartúni 8. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

3. Hlíðarvegur 6, umsókn um byggingarleyfi. - 2303013

Húnaþing vestra sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun kjallara á Hlíðarvegi 6 F2133898.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja byggingarleyfi á Hlíðarvegi 6. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

4. Hrútatunga, Hrútafjörður, Miðfjörður og Fitjárdalur, strenglagnir. - 2303018

Mál til kynningar.

   

5. Ytri- Árbakki og Ytri-Árbakki land, uppmæling. - 2303011

Hnitsettur lóðauppdráttur Ytri-Árbakka L144447 og Ytri-Árbakka land L204226 dagsettur þann 21.03.2023, gerður af Káraborg ehf, uppfærður samkvæmt þinglýstum gögnum.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja hnitsettan lóðauppdrátt fyrir Ytri-Árbakka og Ytri-Árbakka land.

   

6. Ytri-Kárastaðir, umsókn um stofnun vegsvæðis. - 2303014

Vegagerðin sækir um stofnun 40.153 m² vegsvæðis í landi Ytri-Kárastaða L144478.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun vegsvæðis á Ytri-Kárastöðum.

   

7. Tjörn, umsókn um rekstrarleyfi. - 2304002

Olga Lind Geirsdóttir sækir um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-C minni gistiheimili á Tjörn F2134938.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja rekstrarleyfi. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

8. Hvítserkur, Deiliskipulagstillag. - 2211011

Tillaga af deiliskipulagi landi Ósa fyrir svæði hjá Hvítserk.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja til auglýsingar skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Uppdráttur gerður af Landmótun dagsettur þann 08.03.2023. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Var efnið á síðunni hjálplegt?