352.fundur

352.fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn fimmtudaginn 5. janúar 2023 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Friðrik Már Sigurðsson formaður

Fríða Marý Halldórsdóttir

Óskar Már Jónsson

Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir

Starfsmenn

Bogi Magnusen Kristinsson

Elísa Ýr Sverrisdóttir

Fundargerð ritaði: Elísa Ýr Sverrisdóttir.

Birkir Snær Gunnlaugsson boðaði forföll. 

1. Lindarvegur 12, umsókn um byggingarleyfi. - 2210015

Guðrún Helga Magnúsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Lindarvegi 12 lnr. 226135, Hvammstanga.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að grenndakynna byggingarleyfið fyrir lóðarhöfum við Lindarveg 10 skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

2. Borðeyri, umsókn um stofnun vegsvæðis. - 2212003

Vegagerðin óskar eftir því að stofnað verður vegsvæði úr landi Borðeyrarbæjar lnr. 142178, samkvæmt uppdrætti gerðum af Mannvit dags. 12. mars 2022. Stofnað vegsvæði fær heitið Borðeyrarbær vegsvæði.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar undir
vegsvæði sem fær heitið Borðeyrarbær vegsvæði.

   

3. Laxárdalur 3, umsókn um stofnun vegsvæðis. - 2212004

Vegagerðin óskar eftir því að stofnað verður vegsvæði úr landi Laxárdals 3 lnr. 142211,
samkvæmt uppdrætti gerðum af Mannvit dags. 12. mars 2022. Stofnað vegsvæði fær
heitið Kjörseyri 1 vegsvæði.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar undir
vegsvæði sem fær heitið Laxárdalur 3 vegsvæði.

   

4. Stóra-Borg syðri land - umsókn um byggingarleyfi - 2211004

Búri ehf sækir um byggingarleyfi fyrir frístundarhúsi og bátaskýli á Stóru-Borg syðri land lnr. 144572.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að heimila byggingarleyfið sem er í samræmi við gildandi deiliskipulag frá 1994. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

   

5. Auðunnarstaðir lóð, umsókn um stofnun lóðar. - 2212005

Flaumur ehf. sækir um stofnun lóðar úr landi Auðunnarstaða, lnr. 144596, samkvæmt uppdrætti gerðum af Skúla Húni Hilmarssyni dags. 17. nóvember 2022. Stofnuð lóð fær heitið Auðunarstaðir lóð.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðarinnar Auðunnarstaðir lóð.

   

6. Faxaslóð 4 - umsókn um byggingarleyfi. - 2301002

Björk Þorsteinsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir 160 m² vélaskemmu á Faxaslóð 4 lnr. 144553.

Skipulags- og umhverfisráð hafnar umsókn um byggingarleyfi fyrir 160 m² vélaskemmu, fyrir er 71 m² frístundarhús á lóðinni. Deiliskipulag heimilar einungis samanlagt 120 m² byggingarmagn á lóð samkvæmt 4.gr. greinagerðar skipulagssins.

Var efnið á síðunni hjálplegt?