243. fundur

243. fundur fræðsluráðs haldinn fimmtudaginn 25. janúar 2024 kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður,
Elísa Ýr Sverrisdóttir, aðalmaður,
Halldór Sigfússon, aðalmaður,
Guðmundur Ísfeld, aðalmaður,
Eygló Hrund Guðmundsdóttir, aðalmaður. 

Starfsmenn

Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs. 

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson

1.

Reglur um heimadaga - erindi frá skólastjóra - 2401026

 

Lagt fram erindi frá skólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra um breytingu á Reglum um heimadaga frá 2013. Breytingatillögurnar snúa að því að aðeins verði hægt sé að sækja um heimadaga frá 1. nóvember til og með 1. apríl ár hvert og að heimadagur verði ekki alltaf sami vikudagurinn. Fræðsluráð bendir á að mikilvægt er að taka tillit til lotubundinna þátta s.s. árshátíðarundirbúnings og danskennslu ef veittir eru heimadagar. Fræðsluráð er sammála tillögu skólastjóra og leggur til við byggðarráð að samþykkja hana.

 

   

2.

Fræðslustjóri að láni - 2310069

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs greindi frá vinnu vegna verkefnisins "Fræðslustjóri að láni". Verið er að mynda stýrihóp starfsmanna og könnun um vilja starfsmanna um endurmenntun verður send út í kjölfarið.

 

   

3.

Barnvænt- og heilsueflandi sveitarfélag. - 2312020

 

Lagt fram erindisbréf stýrihóps um innleiðingu barnvæns- og heilsueflandi sveitarfélags í Húnaþingi vestra. Fræðsluráð samþykkir að Guðmundur Ísfeld verður fulltrúi fræðsluráðs í stýrihópnum.

 

   

4.

Fundargerðir farsældarteymis - 2310067

 

Fundargerðir farsældarteymis lagðar fram til kynningar.

 

   

Fræðsluráð fór í íþróttamiðstöð kl. 15:48 og hélt fundi sínum áfram þar.

5.

Starfsáætlanir íþrótta- og félagsmiðstöðvar 2024 - 2311068

 

Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir helstu atriði í starfsáætlunum íþróttamiðstöðvar og félagsmiðstöðvar fyrir árið 2024. Fræðsluráð þakkar Tönju fyrir greinargóða yfirferð.

 

   

6.

Skoðunarferð í íþróttamiðstöð - 2401068

 

Fræðsluráð skoðaði Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra og kynnti sér nýafstaðnar endurbætur og áherslur í starfsemi.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt Fundi slitið kl. 17:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?