Fundargerð fjallskilastjórnar Bæjarhrepps.

Fundargerð fjallskilastjórnar Bæjarhrepps. fjallskilastjórnar haldinn sunnudaginn 27. ágúst 2023 kl. 20:00 að Kjörseyri .

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson, formaður.

Sigrún Waage.

Hannes Hilmarsson.

Fundargerð ritaði: Ingimar Sigurðsson

Fundur haldin hjá fjallskilastjórn fyrrum Bæjarhrepps að Kjörseyri 27. ágúst 2023 kl 20.00

Mættir voru undirritaðir:

Ingimar Sigurðsson, formaður, Sigrún Waage og Hannes Hilmarsson.

 

Farið var yfir leitarseðil og helstu atriði uppfærð í samræmi við nýjustu upplýsingar.

Tekin var ákvörðun um að hækka fjallskil frá fyrra ári og hækki því á vetrarfóðraða kind úr kr 115 í kr 125. Einnig var samþykkt að greiðslur til jöfnunar fjallskila hækki úr 6.200 í kr 6.500

Samkvæmt fjallskilareglugerð Húnaþings vestra skal réttað í Hvalsárrétt laugardaginn 16. september og Kvíslarland verður leitað föstudaginn 15. september.

Önnur leit verður laugardaginn 30. september.

Réttað verður í Hvalsárrétt sunnudaginn 1 . október kl 13.00

 

Formanni falið að ganga frá leitarseðli og koma honum til dreifingar.

 

Hvalsárrétt er í ágætu standi. Búið er að bera ofaní veg heim að rétt.

 

Búið er að fara yfir safngirðingu, sem er í nokkuð góðu standi.

 

 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl 21.30

 

 

Ingimar Sigurðsson, formaður

Sigrún Waage

Hannes Hilmarsson

Var efnið á síðunni hjálplegt?