254. fundur

254. fundur félagsmálaráðs haldinn miðvikudaginn 3. apríl 2024 kl. 10:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Gerður Rósa Sigurðardóttir, formaður,
Júlíus Guðni Antonsson, aðalmaður,
Kolfinna Rún Gunnarsdóttir, aðalmaður,
Sigurbjörg Jóhannesdóttir, aðalmaður,
Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir, varamaður. 

Starfsmenn

Sigurður Þór Ágústsson

Henrike Wappler

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson

 

1.

Fundargerðir farsældarteymis - 2310067

 

Fundargerð 23. fundar farsældarteymis lögð fram til kynningar.

 

   

2.

Frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu - 2403005

 

Lagt fram bréf frá Gæða- og eftirlitstofnun um frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu. Einnig lagt fram svarbréf fjölskyldusviðs sem að hluta til er samræmt með Skagafirði vegna samstarfs um málefni fatlaðs fólks. Ekki er alveg lokið að uppfæra allt regluverk samkvæmt athuguninni en er í vinnslu.

 

   

3.

Gott að eldast - 2310068

 

Henrike Wappler greindi frá vinnu vegna verkefnisins Gott að eldast. Kynningarfundur verður haldinn þann 15. apríl kl. 16:15 í Félagsheimili Hvammstanga fyrir íbúa.

 

   

4.

Helstu verkefni Fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024 - 2401004

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu verkefni frá síðasta fundi. Almenn mál til meðferðar voru 48 og einstaklingsmál 50.

 

 

Yfirlit yfir mál hjá fjölskyldusviði

       
 

Des-23

Jan 24

Febr. 24

Mars. 24

Fjárhagsaðstoð - afgreiðslur

       

Framfærsla

0

1

0

0

V. sérstakra aðstæðna

0

 

0

2

Heimaþjónusta

26

26

26

27

Heimsendur matur (aðilar sem fara sjálfir í mat)

11 (+2)

13 (+2)

12 (+2)

13 (+2)

Dagdvöl (5 pláss) - einstaklingar

15

15

15

15

Sérstakur húsnæðisstuðningur - afgreiðslur

 

29

4

 

Liðveisla - fjöldi samninga

4

4

4

3

Lengd viðvera - fjöldi samninga

3

3

3

3

Akstur fyrir fatlaða - fjöldi einstaklinga

5

5

5

5

Stuðningsfjölskyldur

       

Málefni fatlaðra

4

4

4

4

Aðrir

3

3

3

3

Ráðgjöf

       

Regluleg ráðgjöf - börn

10

10

12

9

Regluleg ráðgjöf - fullorðnir

6

10

8

8

Stakir tímar / ráðgjöf - börn

9

17

8

8

Stakir tímar / ráðgjöf - fullorðnir

14

10

16

9

Hóparáðgjöf - börn

0

3

2

1

Hóparáðgjöf - fullorðnir

0

0

0

0

Fjöldi viðtala - börn

30

38

37

28

Greiningar

       

Greiningum lokið

1

2

3

2

Börn í greiningu

2

2

0

1

Börn í bið eftir greiningum

1

1

2

0

Börn í bið hjá Geðheilsumiðstöð/öðrum en sveitarf.

14

14

15

15

Samkvæmt verkefnalista:

       

Mál til meðferðar/vinnslu/afgreiðslu

48

49

42

48

Einstaklingsmál til meðferðar/vinnslu/afgreiðslu

47

43

54

50

         

5.

Rafræn íbúagátt - 2403061

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti nýja rafræna íbúagátt sem verið er að koma upp. Hún verður aðgengileg þegar öll umsóknareyðublöð hafa verið sett í gáttina.

 

   

6.

Öruggara Norðurland - 2403062

 

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti verkefnið Öruggara Norðurland sem er samstarfsverkefni Lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, sýslumannsins á Norðurlandi vestra, sveitarfélaganna Húnaþings vestra, Húnabyggðar, Skagabyggðar, Skagastrandar og Skagafjarðar, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmis, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra ásamt ungmennafélögunum USAH, USVH og UMSS sem hafa ákveðið að vinna saman gegn ofbeldi, öðrum afbrotum og að bættri þjónustu undir heitinu Öruggara Norðurland vestra.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?