1207. fundur

1207. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 4. mars 2024 kl. 14:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Magnús Magnússon, formaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður.

Starfsmenn

Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

 

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

1.

Styrktarsamningur við Björgunarsveitina Húna - 2401083

 

Lagður fram uppfærður styrktarsamningur við Björgunarsveitina Húna þar sem stuðningur sveitarfélagsins við sveitina er sameinaður í einn samning. Byggðarráð samþykkir samninginn og felur sveitarstjóra undirritun hans. Í samningnum felst meðal annars framkvæmd flugeldasýningar á gamlárskvöld, framkvæmd þrettándabrennu og flöggun við stofnanir sveitarfélagsins á fánadögum. Stuðningur sveitarfélagsins við Björgunarsveitina Húna á árinu 2023 var samtals kr. 1.554.906.

 

   

2.

Endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga – 2402012

 

Lagður fram samningur milli Húnaþings vestra og menningar- og viðskiptaráðuneytis vegna framlags til stuðnings við endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga, alls 40 milljónir á árinu 2024. Er samningurinn samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar við samþykkt fjárlaga 2024 á Alþingi þann 16. desember 2023. Byggðarráð staðfestir samninginn fyrir sitt leyti. Jafnframt fagnar ráðið styrkveitingunni sem er mikilvægur liður í vinnu við uppsetningu samfélagsmiðstöðvar í Félagsheimilinu. Gert er ráð fyrir að framlaginu verði ráðstafað til þakviðgerða á húsinu sumarið 2024.

 

   

3.

Sala á Engjabrekku – 2402036

 

Sveitarstjórn samþykkti á 371. fundi sínum þann 14. september 2023 að bjóða jörðina Engjabrekku á Vatnsnesi til sölu. Byggðarráð felur sveitarstjóra að auglýsa eftir tilboðum í eignina þar sem fram skulu koma fyrirhuguð not jarðarinnar. Byggðarráð áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

 

   

4.

Húsnæði aðgerðastjórnar í héraði - 2402037

 

Lagt fram erindi Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra vegna brýnnar þarfar á uppsetningu aðstöðu fyrir aðgerðastjórn í landshlutanum. Í erindinu er lagt til að aðstöðunni verði komið fyrir til bráðabirgða í húsnæði Björgunarsveitarinnar Skagfirðingsveitar á Sauðárkróki. Áfram munu verða starfræktar aðgerðastjórnir í Húnavatnssýslum þegar upp koma atburðir sem þess krefjast. Mun lögregluembættið kosta uppsetningu aðgerðastjórnarinnar en sveitarfélögin í landshlutanum kosta rekstur hennar. Skv. áætlun lögreglustjóra er gert ráð fyrir að heildarkostnaður rekstrarins árið 2024 verði kr. 1,8 millj. og hlutur Húnaþings vestra kr. 298.015. Byggðarráð samþykkir þátttöku í verkefninu. Jafnframt vill ráðið leggja áherslu á að embættið sjái til þess skoðuð verði þörf á uppsetningu aðstöðu fyrir fulltrúa í aðgerðastjórn í sveitarfélaginu þegar ekki er unnt að komast í húsnæði aðgerðastjórnar á Sauðárkróki.

 

   

5.

Víkingurinn 2024 – 2402044

 

Lögð fram beiðni Félags kraftamanna um stuðning við kraftakeppnina Víkinginn 2024. Ekki er unnt að að verða við beiðninni.

 

   

6.

Beiðni um framlengingu leigusamnings – 2402055

 

Lögð fram beiðni Bjarkar Sigurðardóttur fyrir hönd Dictum ræstingar ehf. um framlengingu leigusamnings vegna íbúðar að Garðavegi 18, neðri hæð vegna sérstakra aðstæðna. Byggðarráð samþykkir framlenginu samningins um 6 mánuði eða til 31. október nk.

 

   

7.

Starfshópur um dreifnám – 2402060

 

Lagt fram erindi frá Fjölskyldusviði Húnaþings vestra og Félags- og skólaþjónustu A-Hún, dagsett 23. febrúar 2024 þar sem fram kemur tillaga að erindisbréfi starfshóps um endurskoðun á dreifnámi á Hvammstanga og Blönduósi. Lagt er til að hópurinn verði skipaður fulltrúa Húnaþings vestra, Húnabyggðar, Skagastrandar og Skagabyggðar, Fræðslustjóra A-Hún, sviðsstjóra fjölskyldusviðs Húnaþings vestra og skólameistara/aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum og samantekt 1. júní 2024 til sveitarstjórna.
Byggðarráð samþykkir framlögð drög að erindisbréfi og samþykkir jafnframt að tilnefna Elínu Lilju Gunnarsdóttur sem fulltrúa Húnaþings vestra í starfshópinn.

 

   

8.

Boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga þann 14. mars 2024 – 2403001

 

Lagt fram boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga sem fram fer 14. mars 2024. Sveitarstjóri verður fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum.

 

   

9.

Fundargerð 461. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem fram fór þann 16. febrúar 2024 – 2402040

 

Lögð fram til kynningar.

 

   

10.

Fundargerð 943. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fór þann 9. febrúar 2024 – 2402039

 

Lögð fram til kynningar.

 

   

11.

Fundargerð 944. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fór 23. febrúar 2024 – 2403002

Lögð fram til kynningar.

 

   

12.

Umsagnarbeiðni um þingsályktunartillögu um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, mál nr. 115. Umsagnarfrestur til 1. mars 2024. – 2402031

 

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?