1192. fundur

1192. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 9. október 2023 kl. 14:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Magnús Magnússon formaður, Friðrik Már Sigurðsson varaformaður, Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Elín Jóna Rósinberg.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg

Formaður setti fund.

1. 

Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2023 - 2310020

 

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs lögðu fram tillögu að viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023 að upphæð kr. 0.-

Lögð er til eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun ársins 2023.
00 - Útsvar
Álagning kr. -38.886.171
01 - Jöfnunarsjóðurinn
Framlög kr. -20.264.276
02 - Félagsþjónusta
Laun og launatengd gjöld kr. -3.256.235
Aðkeypt þjónusta kr. 82.786.989
Húsaleigubætur kr. -1.000.000
04 - fræðslu- og uppeldismál
Tekjur kr. -29.925.000
Laun og launatengd gjöld kr. 24.710.682
Aðkeypt þjónusta kr. 10.600.000
Aðrir innanstokksmunir kr. 500.000
Minniháttar tæki kr. 500.000
05 - menningarmál
Tekjur styrkverkefni kr. -2.250.000
Laun og launatengd gjöld kr. 4.010.202
06 - æskulýðs- og íþróttamál
Laun og launatengd gjöld kr. -5.182.304
Tekjur kr. 3.500.000
Minniháttar tæki kr. 1.700.000
Aðkeypt þjónusta kr. 1.080.000
07 - brunamál og almanvarnir
Laun og launatengd gjöld kr. 4.971.873
Minniháttar tæki kr. 200.000
11 - umhverfismál
Laun og launatengd gjöld kr. -8.309.555
13 - Atvinnumál
Aðrir styrkir kr. 406.000
21 - sameiginlegur kostnaður
Laun og launatengd gjöld kr. 1.859.272
Tekjur kr. -2.428.225
Aðkeypt þjónusta kr. 1.050.000
Minniháttar tæki kr. 1.200.000
Önnur vörukaup kr. 3.168.850
31 - Eignasjóður
Söluhagnaður kr. -29.951.840
Laun og launatengd gjöld kr. 2.880.653
Tekjur kr. 2.428.225
Önnur vörukaup kr. -3.168.850
Tryggingar og bifreiðagjöld kr. -182.323
47 - hitaveita
Laun og launatengd gjöld kr. -3.426.009
Aðkeypt þjónusta kr. 2.050.000
57 - Félagslegar íbúðir
Söluhagnaður kr. -1.371.958

Auknum útgjöldum vegna aðkeyptrar þjónustu og kjarasamninga sem voru umfram spár um launavísistölu er mætt með auknum tekjum, en bæði útsvar og framlög Jöfnunarsjóðs verða hærri en samkvæmt upphaflegri fjárhagsáætlun. Jafnframt er söluhagnaður íbúða hærri en í upphaflegri fjárhagsáætlun.

Nokkuð hefur verið um langtímaveikindi og er kostnaði við þau mætt í viðaukanum. Einnig hefur verið ráðið starfsfólk í stuðning fyrir börn sem eiga lögheimili utan Húnaþings vestra og kostað er af lögheimilissveitarfélagi sem hækkar þá tekjur málaflokksins á móti. Jafnframt varð sú breyting á árinu að ræsting stórs hluta stofnana sveitarfélagsins var boðin út sem lækkar þá að einhverju leyti upphaflega launaáætlun ársins sem á móti hækkun aðkeyptrar þjónustu. Þjónustuþörf í félagsþjónustu hefur aukist verulega umfram áætlun sem sömuleiðis er mætt í viðaukanum.

Lækkun launakostnaðar íþróttamiðstöðvar skýrist af skertri þjónustu vegna endurbóta lagnakerfis sem einnig er ástæða lækkunar á tekjum málaflokksins. Hærri aðkeypta þjónustu æskulýðs- og íþróttamála má rekja til reiknings sem barst frá umsjónaraðila eins íþróttasvæðis vegna áranna 2021 og 2022.

Árið 2023 var skipt yfir í rekstrarleigu á bifreið í stað þess að notast við bíl í eigu sveitarfélagsins. Rekstrarleiga bifreiðarinnar færist á deild 21, sameiginlegan rekstur, í stað þess að kostnaður bifreiðarinnar tilheyri eignasjóði.

Byggðarráð samþykkir tillögu að viðauka með þremur atkvæðum og vísar viðaukanum til afgreiðslu sveitarstjórnar.

 

   

2.

Þjónustustefna í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags - 2310005

 

Lagt fram til kynningar bréf frá innviðaráðuneyti vegna þjónustustefnu sveitarfélaga.

 

   

3.

Flugklasinn. Óskað eftir fjárframlagi árin 2024-2026 - 2309091

 

Ekki er unnt að verða við ósk um fjárframlag.

 

   

4.

Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 1182016 171. mál - 2310007

 

Ekki þykir ástæða til umsagnar um málið.

 

   

5.

Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29. september 2023 - 2310016

 

Lögð fram til kynningar.

 

   

6.

Fundargerð 99. fundar stjórnar SSNV frá 3. október 2023 - 2310017

 

Lögð fram til kynningar.

 

   

Bætt á dagskrá:

7.

Erindi frá Leigufélaginu Bústað hses. - 2310035

 

Lagt fram erindi frá Leigufélaginu Bústað hses. Í því kemur fram að frá því að Leigufélagið Bústaður hses. var stofnað árið 2019 hafa orðið umtalsverðar breytingar á umhverfi uppbyggingar leiguíbúða á landsbyggðinni. Meðal annars var Brák íbúðafélag hses. stofnað árið 2022 sem hefur það að markmiði að ná fram stærðarhagkvæmni sem næst ekki með litlum húsnæðissjálfseignastofnunum sem eiga og reka fáar íbúðir. Stofnaðilar Brákar eru 32 sveitarfélög sem staðsett eru utan höfuðborgarsvæðisins, þar á meðal Húnaþing vestra. Er sveitarfélögunum sem aðilar eru að Brák gefinn kostur á að leggja almennar íbúðir í þeirra eigu inn í félagið til þess einmitt að tryggja sem hagkvæmastan rekstur íbúðanna í þágu leigjenda.
Stjórn Leigufélagsins Bústaðar hses. hefur samþykkt fyrir sitt leyti sölu á íbúðum félagsins á Lindarvegi 5A-F til Brákar íbúðafélags hses. Óskar félagið eftir samþykki sveitarstjórnar á sölunni í samræmi við lög nr. 52/2016 og lög um húsnæðismál nr. 44/1998. Mun Brák yfirtaka allar skuldbindingar Bústaðar, þar með talda leigusamninga við núverandi leigjendur. Leigufélagið Bríet mun annast umsýslu með íbúðunum fyrir hönd Brákar. Markmið Bríetar er að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina í samstarfi við sveitarfélögin á landinu. Félagið er sjálfstætt starfandi leigufélag í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, stofnað að norrænni fyrirmynd og rekið án hagnaðarsjónarmiða.
Byggðarráð samþykkir söluna fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:24.

Var efnið á síðunni hjálplegt?