1188. fundur aukins

1188. fundur aukins byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn fimmtudaginn 14. september 2023 kl. 08:30 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Magnús Magnússon formaður, Friðrik Már Sigurðsson varaformaður, Magnús Vignir Eðvaldsson, Þorleifur Karl Eggertsson, Þorgrímur Guðni Björnsson, Sigríður Ólafsdóttir og Elín Lilja Gunnarsdóttir.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri.
Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg

Magnús Magnússon formaður setti fund.

Afgreiðslur:

  1. Fjárhagsáætlun 2024, ásamt 3ja ára áætlun.
    1. Gjaldskrár. Almennt farið yfir forsendur gjaldskráa fyrir umræður í sveitarstjórn.
    2. Frístundakort. Lögð fram tillaga að því að fjárhæð frístundakorts verði kr. 20.000 árið 2024. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
    3. Fjárfestingar. Lögð fram tillaga að fjárfestingum árið 2024, ásamt 3ja ára áætlun. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10:39.

Var efnið á síðunni hjálplegt?