1185. fundur

1185. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 14. ágúst 2023 kl. 14:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Magnús Magnússon formaður, Friðrik Már Sigurðsson varaformaður og Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri.
Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg

Magnús Magnússon formaður setti fund.
Afgreiðslur:
1. Beiðnir um námsstyrki:
a. 2307023 Dagrún Sól Barkardóttir óskar eftir styrk til MT náms til kennsluréttinda við Háskólann á Akureyri. Fyrir liggur jákvæð umsögn skólastjóra vegna umsóknarinnar. Byggðarráð samþykkir veitingu námsstyrks skólaárið 2023-2024 í samræmi við reglur um námsstyrki til starfsmanna Húnaþings vestra.
b. 2307024 Viktor Ingi Jónsson óskar eftir styrk til MT náms til kennsluréttinda við Háskólann á Akureyri. Fyrir liggur jákvæð umsögn skólastjóra vegna umsóknarinnar. Byggðarráð samþykkir veitingu námsstyrks skólaárið 2023-2024 í samræmi við reglur um námsstyrki til starfsmanna Húnaþings vestra.
Magnús Magnússon vék af fundi kl. 14:08 og Friðrik Már Sigurðsson varaformaður tók við fundarstjórn.
2. 2307038 Beiðni um styrk vegna minningartónleika þar sem andvirði miðasölu mun renna til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra. Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar af húsaleigu í Félagsheimilinu Hvammstanga vegna viðburða í samfélagsþágu.
Magnús Magnússon kom aftur til fundar kl. 14:13 og tók við fundarstjórn að nýju.
3. 2307043 Umsögn um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun. Lögð fram til kynningar. Umsögnin verður birt í heild sinni á heimasíðu Húnaþings vestra.
4. 2308018 Drög að jafnréttisáætlun Húnaþings vestra 2023-2026. Samkvæmt 13. gr. laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála skulu sveitarstjórnir að afloknum sveitarstjórnarkosningum sjá til þess að sveitarfélagið setji sér áætlun um jafnréttismál fyrir nýtt kjörtímabil. Áætlunin skal lögð fram til samþykktar í viðkomandi sveitarstjórn, hún rædd árlega í sveitarstjórn og endurskoðuð eftir þörfum. Byggðarráð samþykkir að drögin með áorðnum breytingum verði sett í opið samráð á heimasíðu sveitarfélagsins.
5. 2308021 Milliuppgjör sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja. Annar ársfjórðungur 2023. Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti milliuppgjör eftir fyrstu sex mánuði ársins, en framkvæmdaráð tók það fyrir á fundi sínum þann 10. ágúst sl. Rekstur er almennt samkvæmt áætlun.
6. Fjallskilastjórnir :
a. 2308022 Fundargerð fjallskiladeildar Miðfirðinga frá 2. ágúst 2023 lögð fram til kynningar.
b. 2308023 Fundargerð fjallskiladeildar Víðdælinga frá 8. ágúst 2023 lögð fram til kynningar.
c. 2308024 Fundargerð fjallskiladeildar Hrútfirðinga austan frá 9. ágúst 2023 lögð fram til kynningar.
7. 2308025 Upphafsforsendur fjárhagsáætlunar 2024. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri og Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fóru yfir tillögur að helstu forsendum fyrir fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2024, ásamt 3ja ára áætlun.

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:46.

Var efnið á síðunni hjálplegt?