1065. fundur aukins

1065. fundur aukins byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 9. nóvember 2020 kl. 08:30 Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Fundarmenn

Ingveldur Ása Konráðsdóttir, formaður, Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti, Friðrik Már Sigurðsson, aðalmaður, Magnús Magnússon, aðalmaður, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, aðalmaður, Magnús Eðvaldsson, aðalmaður og Sigríður Ólafsdóttir, aðalmaður.

Starfsmenn

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg

Afgreiðslur:

 

  1. Staða fjárhagsáætlunar 2021 ásamt þriggja ára áætlun árin 2021-2024. Ljóst er að erfitt ár er framundan í rekstri sveitarfélagsins. Sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að funda með forstöðumönnum stofnana sveitarfélagsins vegna hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins.

 

 

 

 

 

Fundargerð upplesin og samþykkt.                            Fundi slitið kl. 10:31.

Var efnið á síðunni hjálplegt?