Orðsending til hundaeigenda á Hvammstanga

Orðsending til hundaeigenda á Hvammstanga

Borist hafa kvartanir vegna lausagöngu hunda í þéttbýli og í hesthúsahverfinu sem er staðsett fyrir ofan Hvammstanga.

Hundaeigendum ber skylda til að passa upp á að hundar þeirra gangi ekki lausir og að hirða úrgang upp eftir hunda sína þegar þeir gera stykki sín á opnum svæðum sveitarfélagsins, útivistarsvæðum, einkalóðum og gönguleiðum sem eru á Hvammstanga.

Íbúar eru minntir á að samkvæmt e-lið 2. gr.

Samþykktar um hunda- og kattahald er lausaganga hunda í þéttbýli bönnuð, en þar segir:

Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa innan marka þéttbýlis nema nytjahunda þegar
þeir eru að störfum og í gæslu eiganda eða umráðamanns. Hundar skulu að öðru leyti ávallt vera
í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir þeim. Þegar hundur er í festi á
lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að óhindrað megi ganga að aðaldyrum húss. Eiganda
eða umráðamanni hunds er alltaf skylt að fjarlægja saur eftir hundinn. 

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Var efnið á síðunni hjálplegt?