Frá Hitaveitu Húnaþings vestra:

Frá Hitaveitu Húnaþings vestra:

Farið verður í viðhald á hitaveitulögnum á Garðavegi og Klapparstíg í sumar.  Búast má við raski þess vegna á eftirtöldum tímabilum:

  • Garðavegur sunnan Brekkugötu frá 25 júní til 16 júlí
  • Garðavegur norðan Brekkugötu frá 16 júlí til 6 ágúst
  • Klapparstígur frá 6 ágúst til 20 ágúst

Nýjar lagnir verða lagðar meðfram þeim gömlu en í lok hvers framkvæmdartímabils verður nauðsynlegt að loka tímabundið fyrir heita vatnið meðan verið er að tengja allar heimtaugar og stofnlagnir á viðkomandi svæði, í allt að tvo sólarhringa.  Nákvæmari tímasetningar verða auglýstar þegar þær liggja fyrir. 

Leitast verður við að lágmarka þann tíma sem loka þarf, eins og kostur er. 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Sviðstjóri veitu-, framkvæmda- og umhverfissviðs.

Var efnið á síðunni hjálplegt?