Fjallskilaseðill í Bæjarhreppi 2018

Fjallskilaseðill í Bæjarhreppi 2018

Laugardaginn 15. september ber að leita fyrstu leit í Bæjarhreppi.

Réttað verður sama dag að Hvalsá. Réttarstjóri er Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir og er einnig í annari leit. Ákveðið hefur verið að leita Kvíslarland 1. leit, föstudaginn 14. september.

Önnur leit fer fram laugardaginn 29. september. Þá skulu ábúendur hafa leitað heimalönd sín. Utanbæjarfé á að koma til réttar í tæka tíð.

Réttað verður í Hvalsá sunnudaginn 30. september kl 13.00.

Ekki er heimilt að sleppa fé í beitarhólfið við Hvalsárrétt fyrr en laugardaginn 8. september og ekki fyrr en viku fyrir aðra leit. Þriðja leit verður ákveðin síðar svo og leitir innan varnarlínu við Fjarðarhorn.

 

Fjáreigendur leggi til menn í göngur og réttir samkvæmt meðfylgjandi seðli.

Upplýsingar um fjárfjölda eru fengnar úr forðagæsluskýrslum.

Leitarstjórar skulu gæta þess að samræmi sé með leitum á samliggjandi leitarsvæðum

 

Leitarmenn á Heydals og Hrafnadalsfjalli leiti niður Hvalsárlönd.

Önnur leit á Hrafnadalsfjalli fari þannig fram, Bakkadalur leitaður niður að Bæ og Ljótunnarstöðum og hinn hlutinn niður Hvalsárlönd. Ef fjáreigendur mæta ekki til leitar verði leitarstjóra og/eða oddvita heimilt að ráða leitarmenn á þeirra kostnað.

 

Tilhögun þriðju leitar verður ákveðin síðar en fjáreigendum ber að leggja menn í þá leit sem neðan greinir.

Kvíslarland 3. leit. Kjörseyri ehf Kjörseyri 1. Jóhann Laxárdal 1. Áslaug Valdasteinsstöðum 1.

Leitarstjóri: Ingimar Kjörseyri

Hrafnadalsfjall 3. leit. Gunnar Bæ 1. Heiðar Þór Bæ 1. Ragnar Kollsá 1. Björgvin Ljótunnarstöðum 1.

Leitarstjóri: Ragnar Kollsá

Heydalsfjall 3. Leit. Hannes Kolbeinsá 2. Útrækt ehf Guðlaugsvík 1. Guðmundur Skálholtsvík 2

Leitarstjóri: Hannes Kolbeinsá

 

Óvíst er að fé sem kemur í utansveitarréttum verði dreift heim á bæina. Fjáreigendur mega búast við að þurfa að sækja fé sitt þangað sem sundurdráttur fer fram eða í rétt á Hvalsá.

 

Mælst er til þess við leitarmenn að þeir klæðist áberandi fatnaði og skal leitarstjóri minna leitarmenn á það.

 

Fjallskilum er jafnað niður með kr. 88.- á hverja fullorðna sauðkind.

Fyrir dagsverkið er greitt kr 5700.-

Til jöfnunar á fjallskilum og greiðslu á ýmsum kostnaði greiðist í/úr fjallskilasjóði eins og fram kemur á leitarseðli.

 

 

 

Stjórn fjallskiladeildar fyrrum Bæjarhrepps

Var efnið á síðunni hjálplegt?