- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
- Laus störf
- Vatnsveita
- Ertu að flytja í Húnaþing vestra
- Eyðublöð
- Gjaldskrár
- Gjaldskrár
- Persónuverndarstefna
- Veituráð
- Covid-19 spurt & svarað
- Covid-19 Questions and answers
25. fundur Veituráðs haldinn þriðjudaginn 12. janúar 2021 kl. 16:00 Í fundarsal Ráðhússins.
Gunnar Þorgeirsson, formaður, Kolbrún Stella Indriðadóttir, aðalmaður og Gunnar Örn Jakobsson, aðalmaður.
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri
Benedikt Rafnsson, veitustjóri
Gunnar Þorgeirsson setti fund og bauð Kolbrúnu Stellu Indriðadóttur velkomna til starfa fyrir veituráð og jafnframt þakkar hann Elínu Líndal fyrir gott samstarf og óeigingjarnt starf í þágu sveitarfélagsins.
Afgreiðslur:
1. Fjárhagsáætlun veitusviðs 2021. Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs sat fundin undir þessum dagskrárlið.
Elín Jóna fer yfir fjárhagsramma veitusviðs þar sem áætlaðar eru lántökur að upphæð 40 m. króna til framkvæmda og reksturs árið 2021.
2. Framkvæmdir á veitusvið 2021
Eiginfærð fjárfesting:
• Hitaveita:
o Prufudæling á Reykjartanga – gert er ráð fyrir að prufudæling hefjist í apríl.
o Endurnýjun dreifikerfis í Fífusundi
• Vatnsveita:
o Endurnýjun á vatnsbóli í Mjóadal
Aðra framkvæmdir:
• Mat og endurskoðun vatnsveitu á Hvammstanga
• Endurnýjun á stofni frá vatnstanki á Hvammstanga að Kirkjuvegi
• Lagning ljósleiðara suður Hrútafjörð
• Hitaveita fjargæsla
3. Rafmagnsleysið 3. janúar – Bilanir og atvik
Fyrir fundinum lá minnisblað frá veitustjóra um atvik og bilanir sem sem upp komu í kjölfar rafmagnsleysis 3. janúar sl. Bilanir í dælustöð á Laugarbakka má rekja til gamallar rafmagnstöflu sem þarfnast endurnýjunar.
4. Reglugerð um styrki til fráveituframkvæmda
Veitustjóri fer yfir reglugerð sem samþykkt var af umhverfis- og auðlindaráðherra síðasta vor. Hægt verður að sækja um styrki fyrir fráveituframkvæmdum sem fram fara á tímabilinu 2020-2030. Veitustjóra falið að skoða hvaða framvæmdir sem fara þarf í á næstu árum hjá sveitarfélaginu falla undir þessa reglugerð.
5. Önnur mál.
Ólafur Stefánsson á Reykjum óskar eftir að tengjast til bráðabirgða ljósleiðaraþræði á Reykjatanga og spegla að Reykjum. Netsambandið á Reykjum er mjög lélegt og litið er á þessa aðgerð sem tímabundna þar til ljósleiðari verður lagður í Hrútafirði. Ólafur mun greiða allan kostnað við framkvæmdina, undirbúning og frágang. Veituráð gerir ekki athugasemdir við að farið verði í þessa framvæmd.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 17:21