359. fundur

359. fundur Sveitarstjórnar Húnaþings vestra haldinn fimmtudaginn 10. nóvember 2022 kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti, Magnús Vignir Eðvaldson aðalmaður, Magnús Magnússon aðalmaður, Þorgrímur Guðni Björnsson aðalmaður, Liljana Milenkoska varamaður, Elín Lilja Gunnarsdóttir aðalmaður og Ingveldur Ása Konráðsdóttir varamaður.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.
Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg

Oddviti setti fund. Oddviti óskaði eftir að taka á dagskrá sem 11. dagskrárlið skýrslu sveitarstjóra. Samþykkt samhljóða. Gengið var til dagskrár.

1. Byggðarráð, formaður kynnti.
Fundargerð 1153. fundar byggðarráðs frá 17. október sl. Fundargerð í 7 liðum.
Dagskrárliður 3 styrkbeiðni frá Leikflokki Húnaþings vestra.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1154. fundar byggðarráðs frá 24. október sl. Fundargerð í 4 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1155. fundar byggðarráðs frá 31. október sl. Fundargerð í 2 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1156. fundar byggðarráðs frá 31. október sl. Fundargerð í 9 liðum.
Dagskrárliður 7 samningur um snjómokstur á Laugarbakka.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1157. fundar byggðarráðs frá 7. nóvember sl. Fundargerð í 6 liðum.
Dagskrárliður 1 tilnefning fulltrúa í verkefnaráð Holtavörðuheiðarlínu 3.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Skipulags- og umhverfisráð, oddviti kynnti.
Fundargerð 350. fundar skipulags- og umhverfisráðs frá 3. nóvember sl. Fundargerð í 4 liðum.
Dagskrárliður 1 erindi nr. 2211014, stofnun vegsvæðis, borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 2 erindi nr. 2210003, umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir hitaveitu, borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 3 erindi nr. 2210023, umsókn um byggingarleyfi, borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 4 erindi nr. 2210021, umsókn um rekstrarleyfi, borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. Fræðsluráð, formaður kynnti.
Fundargerð 231. fundar fræðsluráðs frá 3. nóvember sl. Fundargerð í 2 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4. Félagsmálaráð, oddviti kynnti.
Fundargerð 238. fundar félagsmálaráðs frá 26. október sl. Fundargerð í 5 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
5. Landbúnaðarráð, oddviti kynnti.
Fundargerð 195. fundar landbúnaðarráðs frá 2. nóvember sl. Fundargerð í 6 liðum.
Dagskrárliður 1, fjallskil í Víðidal.
Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Elín Lilja Gunnarsdóttir víkur af fundi.
Dagskrárliður 2, vetrarveiði á ref.
Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Elín Lilja Gunnarsdóttir kemur aftur til fundar.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Ungmennaráð, oddviti kynnti.
Fundargerð 71. fundar ungmennaráðs frá 20. október sl. Fundargerð í 4 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
7. Starfshópur um fasteignir, jarðir og lendur, oddviti kynnti.
Fundargerð 1. fundar starfshóps um fasteignir, jarðir og lendur frá 31. október sl. Fundargerð í 6 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8. Gjaldskrár ársins 2023.

Gjaldskrá fasteignagjalda
Lögð fram svohljóðandi tillaga um álagningu fasteignagjalda og útsvars árið 2023:
Útsvar 14,52 %

Fasteignaskattur A-gjald 0,40 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald 1,32 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald 1,32 % af fm. húss og lóðar
Lóðarleiga, almennt gjald 10 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land 1,38 kr. pr. m2

Holræsagjald 0,21% af fm.húss og lóðar
Vatnsskattur 0,27% af fm. húss og lóðar
Aukavatnsskattur 17,0 kr. m3

 

Hreinsun rotþróa:
0-2000 lítra 12.000 kr. pr. þró
2001-4000 lítra 14.050 kr. pr. þró
4001-6000 lítra 15.750 kr. pr. þró
6001 lítra og stærri 4.070 kr. pr. m3

Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, regluleg sorphirða. 100.000 kr.
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli
þar sem ekki er hirt sorp. 43.000 kr.

Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-, B- og C- gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Fasteignamati ríkisins, en holræsagjald, vatnsskatt og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig 4.

Gjalddagar
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 er 1. maí.
Gjalddagar gjalda sem eru á bilinu kr. 20.001 – 38.000 eru 1. apríl og 1. júlí.

Fasteignagjöld eigna sem eru hærri en kr. 38.000 hafa 8 gjalddaga, frá 1. febrúar 2023 til 1. september 2023.

Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2023 til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra. Afslátturinn er tekjutengdur og miðaður við árstekjur skv. nýjasta skattframtali, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjur og tekur einungis til fasteignaskatts. Hámark afsláttar er kr. 72.000.

Tekjuviðmiðun:
Fyrir einstaklinga:
a) Með heildartekjur allt að kr. 4.370.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 72.000.
b) Með tekjur umfram kr. 5.750.000 enginn afsláttur.
Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a) Með heildartekjur allt að kr. 5.750.000 fær 100% afslátt, þó að hámarki kr. 72.000.
b) Með heildartekjur umfram kr. 7.820.000 enginn afsláttur.

Hlutfallslegur afsláttur er veittur samkvæmd framangreindu tekjubili.

1. Elli- og/eða 75% örorkulífeyrisþegi hefur heimild til að leggja fram tekjuvottorð vegna tekna næstliðins árs, og breytast þá tekjuforsendur skv. ofangreindu tekjuviðmiði.

2. Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur.

3. Í tilfelli hjóna eða sambýlisfólks, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára án tillits til þess hvort þeirra er skráð fyrir eigninni.

4. Við andlát maka styrkir sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur álögðum fasteignaskatti ársins að fullu.


Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Aðrar gjaldskrár til einnar umræðu
Lögð fram tillaga að gjaldskrá félagsþjónustu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarnámsstofu.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns Húnaþings vestra og Félagsmiðstöðvarinnar Óríón.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að afslætti af garðslætti eldri borgara.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá þjónustumiðstöðvar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá geymslusvæða í Grænulaut.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Félagsheimilisins á Hvammstanga.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Slökkviliðs Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga um að fjárhæð frístundakorts fyrir börn á aldrinum 6 – 18 ára verði kr. 20.000 árið 2023.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Gjaldskrár til fyrri umræðu
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu, móttöku- og flokkunarstöð úrgangs í Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá sorphirðu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og losun rotþróa í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hvammstangahöfn, hafnarsjóð.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Vatnsveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9. Fjárhagsáætlun ársins 2023, ásamt 3ja ára áætlun fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2023 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2024 – 2026 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 24. nóvember nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10. Aukafundur sveitarstjórnar þann 24. nóvember nk.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að halda aukafund fimmtudaginn 24. nóvember nk., þar sem fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt 3ja ára áætlun áranna 2024 – 2026 verður lögð fram til seinni umræðu.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11. Skýrsla sveitarstjóra. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:43.

Var efnið á síðunni hjálplegt?