351. fundur

351. fundur Sveitarstjórnar Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 30. mars 2022 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Þorleifur Karl Eggertsson oddviti, Ingveldur Ása Konráðsdóttir varaoddviti, Valdimar H. Gunnlaugsson varamaður, Friðrik Már Sigurðsson aðalmaður, Magnús Magnússon aðalmaður, Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður og Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður.  

Starfsmenn

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg


1. Ársreikningur Húnaþings vestra og undirfyrirtækja árið 2021, fyrri umræða.
Kristján Jónasson endurskoðandi KPMG mætti til fundar við sveitarstjórn. Kristján lagði fram og skýrði ársreikninginn ásamt skýrslu um endurskoðun á ársreikningi fyrir árið 2021. Í framhaldinu svaraði Kristján fyrirspurnum sveitarstjórnarmanna.
Að umræðu lokinni lagði oddviti fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2021 til síðari umræðu.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Fundargerð 1130. fundar byggðarráðs frá 30. mars 2022, fundargerð í 3 liðum.
Dagskrárliður 1, ráðning sviðsstjóra fjölskyldusviðs Húnaþings vestra.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 2, ráðning leikskólastjóra Leikskólans Ásgarðs.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Oddviti vék af fundi og varaoddviti tók við fundarstjórn.
Dagskrárliður 3, afleysing skólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Oddviti kom aftur til fundar og tók við fundarstjórn.

 

Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:25

Var efnið á síðunni hjálplegt?