Oddviti setti fund.
- Fundargerðir byggðarráðs, formaður kynnti.
Fundargerð 987. fundar byggðarráðs frá 17. desember sl. Fundargerð í 9 liðum.
4. dagskrárliður, erindi frá Skeggjagötu ehf. um aukna veðheimildí húsnæði félagsins á Laugarbakka. Í bókun byggðarráðs kemur fram að aukin veðsetning felur ekki í sér neinar skuldbindingar af hálfu Húnaþings vestra, en þar sem afsal hefur ekki enn verið gefið út þarf leyfi sveitarfélagsins. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
9. dagskrárliður, afturköllun lóðarumsóknar aðBakkatúni 10. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Lagður fram viðauki 8 við fjárhagsáætlun 2018. Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018. Um er að ræða tilfærslur á milli málaflokka, og hefur viðaukinn því ekki áhrif á heildarniðurstöðu áætlunarinnar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 9:13