325. fundur

325. fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn fimmtudaginn 1. október 2020 kl. 17:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Pétur Arnarsson formaður, Erla Björg Kristinsdóttir, Guðjón Þórarinn Loftsson, Guðmundur Ísfeld og Hallfríður Ólafsdóttir.

Starfsmenn

Ólafur Jakobsson, byggingarfulltrúi

Ína Björk Ársælsdóttir, umhverfisstjóri
Fundargerð ritaði: Pétur Arnarsson.

Dagskrá:

  1.    Erindi nr. 2003088. Hrútatunga, breyting á aðalskipulagi og tillaga að deiliskipulagi .
  2.   Erindi nr. 1909034. Umferð í þéttbýli.
  3.    Erindi nr. 2009068. Bakkatún 6, stækkun byggingarreits.

 

Erindi tekið á dagskrá:

            Bréf frá Kristínu Ólafsdóttur og Aðalsteini Grétari Guðmundssyni.

 

Afgreiðslur:

  1.        Erindi nr. 2003088. Skipulagsmál. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Húnaþings vestra og tillaga að deiliskipulagi fyrir lóð Landsnets í Hrútatungu. Tillögurnar voru auglýstar sbr. 31 gr. og 41. gr. skipulagslaga 123/2010 frá 1. ágúst 2020 – 13. september 2020. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Umhverfisstofnun, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra sem voru án athugasemda, engar aðrar athugasemdir bárust.

Skiplags- og umhverfisráð samþykkir tillögurnar.

 2.         Erindi nr. 1909034.  Lögð er fram tillaga að breytingum á núgildandi reglum um umferð í þéttbýli í Húnaþingi vestra sem settar eru samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.  Pétur Arnarsson leggur fram tillögu að endurskoðuðum reglum. Núgildandi reglur voru samþykktar í sveitarstjórn 14. júní 2012.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir endurskoðaðar tillögur.

 3.         Erindi nr. 2009068. Byggingarfulltrúi leggur fram tillögu að breytingu á byggingarreit á lóðinni Bakkatúni 6, L211558. Lagt er til að reiturinn stækki til vesturs um 3 m. (Húsið snýr austur vestur. Húsið Bakkatún 8 er 0,5 m frá norðurlóðarmörkum og húsið á lóðinni Bakkatúni 4 er teiknað 3,4 m frá suðurlóðarmörkum.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir að fram fari grenndarkynning á breyttum byggingarreit og að hún nái til lóðarhafa eftirtalinna lóða: Bakkatún 4 og Bakkatún 8.

Tekið á dagskrá:

Bréf frá Kristínu Ólafsdóttur og Aðalsteini Grétari Guðmundssyni varðandi erindi 2008032 á 324. fundi Skipulags- og umhverfissráðs, þar sem þau óska eftir frekari upplýsingum varðandi afgreiðslu ráðsins.

 

Skipulags- og umhverfisráð felur formanni að svara bréfinu.

Lagt fram til kynningar:

Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa nr. 58 og 59.

Hugmyndir af göngustígalýsingu meðfram Syðri Hvammsá. Ína Björk kynnti.

 

 

Fundargerð upplesin og samþykkt.

 

                                                                                                           Fundi slitið kl. 18:15

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?