176. fundur

176. fundur landbúnaðarráðs Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 15. júlí 2020 kl. 13:00 í Félagsheimilinu Hvammstanga.

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson, formaður, Ebba Gunnarsdóttir, aðalmaður, Halldór Pálsson, aðalmaður,  Sigtryggur Sigurvaldason, aðalmaður og  Guðrún Eik Skúladóttir, aðalmaður.

Starfsmenn

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir.

 Dagskrá:                                                            

 

1.    Úthlutun fjármagns til viðhalds samgönguleiða.

Borist hefur bréf frá Vegagerðinni, þar sem fram kemur að samþykkt hafi verið úthlutun til styrkvega árið 2020 kr. 3.500.000. Í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins árið 2020 er samþykkt að veita kr. 2.800.000 til styrkvega.  Til viðhalds styrkvega á árinu 2020 eru því kr. 6.300.000 til úthlutunar.

Eftirfarandi tillaga um skiptingu fjárins var samþykkt samhljóða:

a)  Til afréttarvegar á Víðidalstunguheiði     kr.   2.800.000
b)  Til afréttavega í Miðfirði                          kr.   1.550.000
c)  Til afréttavega í Hrútafirði austur            kr.      750.000
d)  Til vegar yfir Brandagilsháls                    kr.      300.000
e) Til vegar upp á Vatnsnesfjall                    kr.      300.000

f) Til afréttavega í Hrútafirði vestur              kr.      600.000

 

Viðkomandi fjallskilastjórnir sjái um framkvæmdir á afréttarvegum hver á sínu svæði að öðru leyti en því að sveitarstjóra er falið að fá verktaka í viðhald vegar yfir Brandagilsháls.

 

 

 

Fundargerð upplesin, fundi slitið kl. 13:35

Var efnið á síðunni hjálplegt?