154. fundur

154. fundur landbúnaðarráðs Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 15. nóvember 2017 kl. 13:00 Í fundarsal Ráðhúss.

Fundarmenn

Fundinn sátu:
Jóhann Ragnarsson, formaður, Sigtryggur Sigurvaldason, aðalmaður, Matthildur Hjálmarsdóttir, aðalmaður, Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður og Þórarinn Óli Rafnsson aðalmaður.

Starfsmenn

Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Guðný Hrund Karlsdóttir

Dagskrá:                                                           

  1. Niðurlagning Blöndulínu, sameining Húnahólfs og Skagahólfs
  2. Búfjáreftirlitsmaður
  3. Önnur mál

 

Afgreiðslur:

 

  1. Landbúnaðarráð Húnaþings vestra mótmælir hugmyndum um niðurlagningu Blöndulínu.

Ekki hefur komið upp riða í Húnahólfi síðan árið 2007 en í Skagahólfi kom riða upp síðast árið 2016.  Þarna munar nærri 10 árum og verður að teljast óeðlilegt að slíkt kallist sama sjúkdómastaða. 

Í maí árið 2016 ákvað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að skipa starfshóp til að skila tillögum til ráðuneytisins um endurskoðun auglýsingar um varnarlínur vegna sauðfjársjúkdóma. Í tillögunum skyldi koma fram hvaða varnarlínum skyldi halda við og eftir atvikum hvaða varnarlínur starfshópurinn mælti með að lagðar yrðu niður, ásamt greinargerð þar að lútandi.  Hópur skilaði af sér í mars 2017 og er skemmst frá því að segja að starfshópurinn lagið til að Blöndulína verði áfram varnarlína.

Landbúnaðarráð telur undarleg vinnubrögð að ganga skuli gegn nýframkomnum tillögum starfshóps sem var skipaður af ráðuneytinu sjálfu.

2. Lagt fram tölvubréf frá Ingvari Jóhannssyni þar sem hann segir upp starfi sínu sem búfjáreftirlitsmaður Húnaþings vestra.  Sveitarstjóra falið að auglýsa starfið laust til umsóknar.

3. Önnur mál. 

Engin önnur mál.

 

 

 

Fundargerð upplesin og samþykkt.                           Fundi slitið kl. 14:42 

Var efnið á síðunni hjálplegt?