Fjallskilastjórn Miðirðinga

Fjallskilastjórn Miðirðinga fjallskilastjórnar haldinn föstudaginn 10. desember 2021 kl. 14:00 Staðarbakka.

Fundarmenn

Rafn Benediktsson formaður, Ebba Gunnarsdóttir og Valgerður Kristjánsdóttir.

Fundargerð ritaði: Valgerður Kristjánsdóttir

Dagskrá:
1. Uppgjör vegna seinni leita á hrossum. Helga Rós Níelsdóttir Fremri Fitjum hefur sent fjallskilastjórn bréf þar sem hún lýsir óánægju sinni með smölun á hrossum og leggur fram vinnuskýrslu við eftirleitun hrossa. Sr. Magnús Magnússon Staðarbakka lagði ennfremur fram skýrslu vegna eftirleita hrossa haustið 2020. Fjallskilastjórn fór ýtarlega yfir skýrslurnar og samþykkir að greiða 869 km vegna hrossaleita og 92 tíma í eftirleitir. Ljóst er að setja þarf reglur um upprekstur hrossa í framtíðinni, þannig að fullorðin hross fylgi tryppum á heiðina.
2. Fjallskil stemmd af og send út í ráðhús.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 16:15.

Var efnið á síðunni hjálplegt?