Afgreiðslur:
- Tónlistarskóli Húnaþings vestra, stjórnun skólaárið 2022 – 2023. Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem farið hefur fram í kjölfar bókunar sveitarstjórnar á 355. fundi 11. ágúst sl. Sveitarstjóra er falið að ganga til samninga við Pálínu Fanneyju Skúladóttur um tímabundna stjórnun skólans til 1. október n.k. Jafnframt er sveitarstjóra falið að auglýsa stöðu tónlistarskólastjóra.
Bætt á dagskrá:
2. Atvinnu- og nýsköpunarsjóður lokaskýrsla. Lögð fram lokaskýrsla vegna styrkveitingar sem Handbendi brúðuleikhús ehf. fékk úthlutað úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra fyrir verkefnið „Prófsteinn“. Byggðarráð samþykkir skýrsluna og að eftirstöðvar styrksins verði greiddar út.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 13:39.