20. fundur

20. fundur afgreiðslufunda Byggingarfulltrúa haldinn fimmtudaginn 10. ágúst 2017 kl. 10:00 Í fundarsal Ráðhúss.

Fundarmenn

Ólafur Jakobsson byggingarfulltrúi

Pétur Ragnar Arnarsson formaður skipulags- og umhverfisráðs

Starfsmenn

Ólafur Jakobsson byggingarfulltrúi

Fundargerð ritaði: Ólafur Jakobsson byggingarfulltrúi

1.        Ásbraut 4, bílskúr.

Erindi nr. 1703001.  Jóhannes Jóhannesson, kt. 011251-3319, sækir um leyfi til að byggja bílskúr áfastan við hús sitt að Ásbraut 4. Bílskúrinn stendur 65 cm neðar en húsið og aftar í lóðinni. Mænir snýr norður suður.  Skipulags- og umhverfisráð tók jákvætt í byggingaráformin á 280. fundi sínum 2. mars 2017.

 

Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um lagfæringu skv. fylgiblaði.

2.        Sólbakki, nýtt fjós.

Erindi nr. 1507015. Sólbakki, nýtt fjós.  Á 284. fundi skipulags- og umhverfisráðs var m.a. kallað eftir greinargerð vegna niðurfellingar á eldvarnarskilum á innlögðum aðaluppdráttum af nýju fjósi á Sólbakka eftir Vigfús Halldórsson, kt. 100760-5849, mótteknum 22. maí 2017. Greinargerðin hefur ekki borist. Karfan um brunaskil sendur því.

 

Byggingarfulltrúi frestar erindinu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

3.        Tannstaðabakki, nýtt fjós.

Erindi nr. 1704006.Óskar Már Jónsson kt. 091286-3199 sækir, f.h. Máreik ehf. kt. 560606-1250 með erindi dags. 5. apríl 2017, um leyfi til þess að reisa fjós að Tannstaðabakka. Áður á dagskrá 17. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.  Innkomnar nýjar teikningar 26. júlí 2017.

 

Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin, með þeim skilyrðum sem fram koma á fylgiblaði.

 

 

 

Fundi slitið – kl. 11:30

Var efnið á síðunni hjálplegt?