1. Erindisbréf nefnda og ráða - 2605065
Erindisbréf umhverfis-,veitu- og framkvæmdaráðs og siðareglur kjörinna fulltrúa í Húnaþingi vestra lagðar fram til kynningar.
Reglulegur fundir umhverfis-,veitu- og framkvæmdaráðs ákveðnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 13:00.
Samþykkt
Inn á fundin komu Þórbergur, Heiða og Sigurður starfsmenn sviðsins
2. Staða verkefna Umhverfis,- veitu- og framkvæmdasviðs 2026 - 2606084
Sviðsstjóri umhverfis,- veitu og framkvæmdasviðs fór yfir helstu framkvæmdaverkefni ársins og stöðu þeirra.
Ráðið þakkar starfsfólki sviðsins fyrir kynninguna og leggur til við Byggðarráð að gerður verði viðauki uppá 6.500.000 kr.vegna framkvæmda við tröppur neðan við skólalóð.
Samþykkt
Af fundinum fóru Þórbergur, Heiða og Sigurður
3. Upplýsingar vegna yfirfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits til stofnana ríkisins - 2606079
Upplýsingar frá Heilbrigðiseftirlitinu á Norðurlandi vestra, dags. 24. júní 2026, vegna yfirfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits til stofnana ríkisin og þau verkefni sem sitja eftir hjá sveitarfélögunum við yfirfærsluna.
Ráðið felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir og upplýsa nefndina eftir þörfum.
Samþykkt
4. Verklagsreglur vegna framkvæmda - framkvæmdasamningar - 2607015
Lagt fyrir uppkast að verklagsreglum vegna framkvæmda á vegum sveitarfélagsins.
Ráðið felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að verklagsreglum á næsta fundi.
Samþykkt
5. Úttekt á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs - 2511056
Úttektarskýrsla á starfsemi umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviði lögð fram og kynnt.
Ráðið leggur til, sem viðbragð við úttektarskýrslu, að breyta skilgreiningu starfa innan sviðsins: Í stað leiðtoga veitna komi starf forstöðumanns framkvæmda og veitna sem verði verkstjóri áhaldahúss. Undir honum starfi svo starfsmaður veitna, umsjónarmaður fasteigna og umsjónarmaður hafna og Hirðu. Breytingin fjölgi ekki störfum þar sem gert var ráð fyrir þessum fjórum störfum innan áhaldahússins og sú tala verði óbreytt. Með þessu vonast ráðið til þess að skýrari verkaskipting verði innan sviðsins með skilgreindum hlutverkum og ábyrgð starfsmanna. Ráðið felur sviðsstjóra að leggja fram aðgerðaráætlun í samræmi við niðurstöðu skýrslunnar á næsta fundi ráðsins.
Samþykkt
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:15.