Verndarsvæði í byggð – íbúafundur á Borðeyri

Húnaþing vestra hefur nú í undirbúningi umsókn til mennta- og menningarmálaráðherra um að gamli hluti Borðeyrar – „plássið“ svokallaða – verði skilgreindur sem Verndarsvæði í byggð. Vegna þessa verður boðið til íbúafundar í skólahúsinu á Borðeyri fimmtudaginn 1. júní næstkomandi kl. 13:00. Þar verður verkefnið kynnt fyrir íbúum og þeim gefst kostur á að bera upp spurningar og koma með athugasemdir.

Verndarsvæði í byggð er byggð innan afmarkaðs svæðis sem nýtur samkvæmt ákvörðun ráðherra sérstakrar verndar vegna svipmóts, menningarsögu eða listræns gildis. Lög þess efnis tóku gildi árið 2015. Markmið þeirra eru að vernda menningarsöguleg og listræn verðmæti, bæta umhverfið og auka aðdráttarafl hverfa og bæjarhluta.

Á fundinum munu Guðný Hrund Karlsdóttir  sveitarstjóri Húnaþings vestra, Sólveig Hulda Benjamínsdóttir forstöðumaður safna í Húnaþingi vestra og Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðingur kynna verkefnið, hvað felst í því og hvar það er statt í ferlinu og sitja fyrir svörum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?