Sýningaropnun á bókasafninu

Fimmtudaginn 16. janúar kl. 16:00 opnar sýning á Bóka –og héraðsskjalasafninu á 17 myndverkum Halldórs Péturssonar úr Grettis sögu en myndirnar eru gjöf frá Menningarsjóði Sparisjóðs Vestur-Húnavatnssýslu, sem nýlega var lagður niður.

Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.

Sýningin mun svo standa áfram á safninu, en opnunartími safnsins er frá 12-17 alla virka daga.

Var efnið á síðunni hjálplegt?