Skógarlíf

Frumskógurinn vaknar til lífsins á aðventunni.
Við fylgjumst með magnaðri þroskasögu og ævintýrum Móglí, sem elst upp meðal dýra í frumskóginum.
Skógarlíf er glæný leikgerð eftir Gretu Clough sem unnið hefur til alþjóðlegra verðlauna bæði sem leikskáld og sviðslistamaður.
Leikgerðin er byggð á the Jungle Book eftir Rudyard Kipling.
Það er okkur í Leikflokk Húnaþings vestra sönn ánægja að kynna heimsfrumsýningu á þessu verki í Félagsheimilinu á Hvammstanga dagana 14.-15. desember.
Áhorfendur fá að kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum sögupersónum, tónlist og hönnun undir indverskum áhrifum í framsetningu fjölbreytts og hæfileikaríks hóps fólks úr Húnaþingi vestra.
Þetta er ævintýri sem þið megið alls ekki missa af.

Tengill á viðburð

Var efnið á síðunni hjálplegt?