Ratsjáin og Ræsing Húnaþinga - Kynningarfundur Hvammstanga

Ræsing Húnaþinga
Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við sveitarfélög í Húnaþingum leitar að góðum viðskiptahugmyndum sem auka flóru atvinnulífs í sveitarfélögunum. Þátttakendur fá leiðsögn og fræðslu um áætlanagerð, vöruþróun og frumgerðasmíð. Verkefnið hefst í febrúar og skila þátttakendur viðskiptáætlun um verkefni sín í lok apríl. Besta viðskiptahugmyndin fær allt að 1.000.000 kr. í verðlaun.

Ratsjáin
Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni Íslenska ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem býður stjórnendum í starfandi ferðaþjónustufyrirtækjum þátttöku í þróunarferli með það að markmiði að efla þekkingu og hæfni sína á sviði fyrirtækjareksturs. Verkefnið er unnið með stuðningi af Byggðaáætlun.

Kynningarfundur um Ræsingu Húnaþinga og Ratsjána verður 25. janúar 2019 á:

Hvammstanga á skrifstofu SSNV Höfðabraut 6 kl. 16:00 – 17:00 (kaffi og með því)

Umsóknarfrestur í bæði verkefnin er til og með 3. febrúar 2019.

Umsóknarform og frekari upplýsingar eru á www.nmi/ratsja, www.nmi.is/raesing eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur selma@nmi.is og Sigurði Steingrímssyni sigurdurs@nmi.is

Tengill á viðburð

Var efnið á síðunni hjálplegt?