Kjötsúpa, bar og lifandi tónlist

Magnús bóndi á Stóru Ásgeirsá mun taka á móti gestum í mjólkurhúsinu og bjóða upp á kjötsúpu og opinn bar.
Á Stóru Ásgeirsá er hrossabú og ferðaþjónusta og gefst gestum tækifæri á að fara í reiðtúr, skoða fallega náttúru og fara í heita pottinn þar sem bæjarfossinn skartar sínu fegursta.
Bóndinn mun svo taka lagið fyrir gesti og gangandi.

Tengill á viðburð

Var efnið á síðunni hjálplegt?