Kjörfundur 14. maí 2022 - sveitarstjórnarkosningar

Kjörfundur til sveitarstjórnarkosninga í Húnaþingi vestra verður haldinn í Félagsheimili Hvammstanga 14. maí 2022. Kjörfundur stendur frá kl. 09:00 – 22:00.

Kjósendum ber að framvísa skilríkjum á kjörstað ef þess er óskað. Minnum á að allir sem hafa erlendan ríkisborgararétt og hafa haft lögheimili á Íslandi í a.m.k. þrjú ár geta kosið til sveitarstjórnar. Íbúar frá norðurlöndunum hafa kosningarétt í því sveitarfélagi sem þeir eiga lögheimili í.

Kjörstjórn Húnaþings vestra.

Var efnið á síðunni hjálplegt?