Íbúafundur um framtíðarskipan skólamála

Íbúafundur um framtíðarskipan skólamála

Miðvikudaginn 29. nóvember kl. 18:00 – 20:00 verður haldinn vinnufundur íbúa í Félagsheimilinu á Hvammstanga um framtíðarskipan skólamála í Húnaþingi vestra til næstu 30 ára. Óskað er eftir hugmyndum, umræðu og ábendingum frá íbúum sveitarfélagsins.

26. maí sl. skipaði byggðarráð Húnaþings vestra starfshóp sem hefur umsjón með vinnu við mat á þörfum skólans varðandi húsnæðismál hans. Starfshópurinn hefur fundað með fulltrúum helstu hagsmunaaðila en kallar nú eftir víðtækara samstarfi.

Allir áhugasamir um skipan leik-, tón- og grunnskólamála í Húnaþingi vestra velkomnir.

Sveitarstjóri

Var efnið á síðunni hjálplegt?