Húnvetnska liðakeppnin 2018

Mótin verða fjögur 2018 og að auki sameiginlegt lokamót með Skagfirðingum og Eyfirðingum.

  • Fyrsta mót laugardaginn 17. febrúar, keppt verður í Trec. 
  • Annað mótið verður haldið laugardaginn 10. mars og þá verður keppt í fjórgangi V3 í 1., 2. og unglingaflokki, V5 í barnaflokki og 3. flokki. 
  • Þriðja mótið verður haldið sunnudaginn 25. mars og þá verður keppt í fimmgangi F2 í 1., 2., og unglingaflokki. Tölti T2 opið öllum flokkum. Börn og 3. flokkur keppa i þrígangi.
  • Fjórða mótið verður haldið laugardaginn 7. apríl og þá verður keppt í tölti T3 í 1., 2. og unglingaflokki og T7 í barna og 3. flokki.


Ekki er komin dagsetning á sameiginlegt lokamót.

Fyrirhugað er að liðin verði kvenna og karlalið.

 

Fyrirkomulag keppninnar og sameiginlegt lokamót verður útskýrt nánar á opnum félagsfundi Þyts sem verður auglýstur síðar.

Sjá heimasíðu hestamannafélagsins Þyts

Var efnið á síðunni hjálplegt?