Firmakeppni Þyts 2018

Hestamannafélagið Þytur heldur sína árlegu firmakeppni miðvikudaginn 28. mars og hefst klukkan 18:00.

Keppt verður í 5 flokkum;  polla, barna, unglinga, karla og kvennaflokki. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki nema í pollaflokki þar fá allir keppendur viðurkenningu fyrir þátttöku.

Við hvetjum alla til að mæta vel skreyttir og eiga skemmtilegan dag saman.

Búningaverðlaun verða veitt í barna, unglinga, karla og kvennaflokki.

Boðið verður upp á pylsur, skúffuköku, kaffi og djús á staðnum.

Eins og fyrri ár verður skráning keppenda í firmakeppnina á staðnum og því gott að mæta stundvíslega.

 

Firmakeppnisnefnd

Var efnið á síðunni hjálplegt?