Engi

Grasið man. Það man þig. Það man mig. Og það man eftir dýrunum sem áttu heima á enginu.“

Tíminn breytir öllu. Í mannlausri framtíð er það bara grasið sem man hvernig hlutirnir voru. Komdu að hitta dýrin og skordýrin sem bjuggu á enginu og sjáðu sögur þeirra vakna til lífsins. 

Brúðuleikhúsið Handbendi endurvekur brúðuleiksýningu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Sagan er sögð með frumlegum, handgerðum leikbrúðum og sérsaminni tónlist eftir tónskáldið og söngvarann Paul Mosley sem hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda í Bretlandi fyrir plötur sínar.

Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough . Sýningin varfrumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi. 

„Algjörlega töfrandi upplifun…Brúðuhreyfingarnar eru fyrsta flokks, leikhópurinn er stjörnum prýddur…Óður til heims á hverfandi hveli… mjög áhrifamikið" (Total Theatre, London)

„Unaðslegt verk, draumi líkast" (Curious Mum, London)

„Fyrir börn verða leikhúsupplifanir ekki mikið betri." (Reviewsgate, London)

Brúðuleikarar: Samuel Dutton, Greta Clough, Cassie Newby

Höfundur, leikstjóri, brúðusmiður og framleiðandi: Greta Clough

Tónskáld: Paul Mosely

Var efnið á síðunni hjálplegt?