Eldur í Húnaþingi

Unglistarhátíðin Eldur í Húnaþingi verður haldin dagana 26.-30. júlí 2017

 Hátíðin hefur verið haldin ár hvert síðan árið 2003.

Nánast öll vinna við undirbúning hátíðarinnar er unnin í sjálfboðavinnu af íbúum í héraðinu. Margt fólk úr ólíkum áttum hefur komið að skipulagningu hátíðarinnar ár hvert og hafa margar skemmtilegar og frumlegar hugmyndir litið dagsins ljós. Samt sem áður hefur ákveðin hefð skapast í kringum hátíðina og eru þar ákveðnir viðburðir sem skipað hafa sér fastan sess. 

Sjá heimasíðu Elds í Húnaþingi

 

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?