Aðalfundur Rauða krossins í Húnavatnssýslu

Aðalfundur Rauða krossins í Húnavatnssýslu verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar klukkan 17:00 í Fjarnámsstofunni að Höfðabraut 6 á Hvammstanga.

Dagskrá fundarins:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar um starf deildarinnar á liðnu starfsári

3. Áritaður og skoðaður ársreikningur lagður fram til afgreiðslu.

4. Framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár lagðar fram til kynningar.

5. Innsendar tillögur skv. 6. mgr. 21. gr.

6. Kosning deildarstjórnar skv. 21. og 22. gr.

7. Kosning skoðunarmanna og varamanna þeirra. Skv. 22. gr.

8. Önnur mál.

Kjörgengir í stjórn og atkvæðarétt hafa allir félagar, 18 ára og eldri, sem greiddu félagsgjöld fyrir árslok 2022. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum og sjálfboðaliðum með sjálfboðaliðasamning.

Stjórnin

Var efnið á síðunni hjálplegt?