| Fundarnúmer: |
151 |
| Dagsetning: |
11.12.2008 |
| Tími: |
15:00 |
| Staður: |
Fundarsalur Ráðhúss |
Árið 2008 fimmtudaginn 11. desember kom sveitarstjórn Húnaþings vestra saman til 151. fundar í Ráðhúsi Húnaþings vestra kl 15:00. Mætt undirrituð. Oddviti setti fund.
Gengið var til dagskrár.
1. Fundargerðir byggðarráðs
a. Fundargerð 569. fundar 17. nóvember. Fundargerð í 8 liðum. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
b. Fundargerð 570. fundar 17. nóvember. Fundargerð 1 liður. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
c. Fundargerð 571. fundar 20. nóvember. Fundargerð 1 liður. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
d. Fundargerð 572. fundar 24. nóvember. Fundargerð í 4 liðum. Borinn undir atkvæði 4. liður fundargerðarinnar og samþykktur með 7 atkvæðum. Aðrir liðir fundargerðarinnar samþykktir með 7 atkvæðum.
e. Fundargerð 573. fundar 24. nóvember. Fundargerð 1 liður. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
f. Fundargerð 574. fundar 1. desember. Fundargerð í 9 liðum. Borinn undir atkvæði 5. liður fundargerðarinnar og samþykktur með 6 atkvæðum. Elín R. Líndal óskaði bókað að hún taki ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar vegna vanhæfis.
Lögð var fram svohljóðandi tillaga vegna 6. liðar: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa afgreiðslu 6. dagskrárliðar í fundargerð 574. fundar byggðarráðs til afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2009.“ Borinn undir atkvæði 6. liður fundargerðarinnar ásamt framangreindri tillögu og samþykkt með 6 atkvæðum. Aðrir liðir fundargerðarinnar samþykktir með 7 atkvæðum.
g. Fundargerð 575. fundar 1. desember. Fundargerð 1 liður. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
h. Fundargerð 576. fundar 8. desember. Fundargerð í 9 liðum. Borinn undir atkvæði 6. liður fundargerðarinnar og samþykkt með 6 atkvæðum. Rakel Runólfsdóttir óskaði bókað að hún taki ekki þátt í afgreiðslu þessa dagskrárliðar vegna vanhæfis. Aðrir liðir fundargerðarinnar samþykktir með 7 atkvæðum.
i. Fundargerð 577. fundar 8. desember. Fundargerð 1 liður. Fundargerðin samþykkt með 6 atkvæðum.
2. Fundargerð 93. fundar félagsmálaráðs 26. nóvember. Fundargerð í 5 liðum. Oddviti kynnti. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
3. Fundargerð 104. fundar fræðsluráðs 9. desember. Fundargerð í 2 liðum. Lögð var fram svohljóðandi tillaga vegna 1.d. liðar: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að fela sveitarstjóra, skólastjóra grunnskóla og leikskólastjóra að taka saman upplýsingar um námssamninga starfsmanna í grunnskóla og leikskóla og leggja drög að reglum um stuðning við nám starfsmanna samhliða starfi.“ Borinn undir atkvæði 1.d. liður fundargerðarinnar ásamt framangreindri tillögu og samþykkt með 6 atkvæðum. Lögð var fram svohljóðandi bókun: „Óska eftir að fá upplýsingar um hve margir eru með undirritaða námssamninga við sveitarstjórn núna 11. desember 2008 og hve margir eru með ígildi þess samkvæmt launaseðlum/ vinnuseðlum viðkomandi. Þessar upplýsingar vil ég fá á næsta byggðarráðsfundi. Oddur Sigurðarson.“
Aðrir liðir fundargerðarinnar samþykktir með 7 atkvæðum.
4. Fundargerð 89. fundar landbúnaðarráðs 2. desember. Fundargerð í 4 liðum. Oddviti kynnti. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
5. Fundargerðir menningar- og tómstundarráðs. Oddviti kynnti.
a. Fundargerð 81. fundar 12. nóvember. Fundargerð í 2 liðum. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
b. Fundargerð 82. fundar 25. nóvember. Fundargerð í 2 liðum. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Fundargerðir skipulags og umhverfisráðs. Oddviti kynnti.
a. Fundargerð 154. fundar 20. nóvember. Fundargerð í 3 liðum. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
b. Fundargerð 155. fundar 9. desember. Fundargerð í 3 liðum. Fundargerðin samþykkt með 6 atkvæðum.
7. Fjárhagsáætlun 2009 fyrir sveitarstjórn Húnaþings vestra og fyrirtæki. Fyrri umræða. Sveitarstjóri og skrifstofustjóri lögðu fram og kynntu áætlunina. Að loknum umræðum var lögð fram svohljóðandi tillaga: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa fjárhagsáætlun ársins 2009 fyrir sveitarsjóð og fyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 18. desember nk.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8. Tillaga að álagningu gjalda og gjaldskrár fyrir árið 2009. Lagðar voru fram eftirfarandi tillögur:
Álagning fasteignagjalda og útsvars
í Húnaþingi vestra árið 2009
Útsvar 13,03%
Fasteignaskattur A-gjald 0,40% af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald 1,32% af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald 1,30% af fm. húss og lóðar
Lóðarleiga, almennt gjald 6,01 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land 0,84 kr. pr. m2
Holræsagjald 0,25% af fm.húss og lóðar
Vatnsskattur 0,31% af fm. húss og lóðar
Aukavatnsskattur 12,75 kr. m3
Hreinsun rotþróa:
0-2000 lítra 6.917 kr. pr. þró
2001-4000 lítra 8.278 kr. pr. þró
4001-6000 lítra 9.866 kr. pr. þró
6001 lítra og stærri 2.608 kr. pr. m3
Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, sorphirða á 10 daga fresti kr. 22.000
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli
þar sem ekki er hirt sorp kr. 9.500
Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-B-og C gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Fasteignamati ríkisins, en holræsagjald, vatnsskatt og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig 4
Gjalddagi gjalda undir kr. 14.000 er 1. maí
Gjalddagar gjalda á bilinu kr. 14.000 til 22.000 eru 1. apríl og 1. júlí
Aðrir gjalddagar eru 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst.
Samþykkt með 6 atkvæðum.
Gjaldskrá Húnaþings vestra
Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2009
2.009
Tónlistarskóli
Hálft nám, börn að 18 ára á önn 17.000
Fullt nám börn að 18 ára á önn 24.000
Hálft nám fullorðnir, 18 ára og eldri á önn 25.500
Fullt nám fullorðnir, 18 ára og eldri á önn 36.000
Forskóli, á önn 12.000
Hljóðfæraleiga fyrstu 2 annirnar á önn 4.000
Hljóðfæraleiga þriðja önn og síðar á önn 7.500
Systkinaafsláttur af námi, hjá öðru barni. 20%
Systkinaafsláttur af námi, frá og með þriðja barni 35%
Afsláttur hvers nemanda af námi á hljóðfæri nr. 2 20%
Leikskóli
4 tíma vistun á mán 12.240
5 tíma vistun á mán 15.435
6 tíma vistun á mán 18.346
8 tíma vistun á mán 23.370
9 tíma vistun á mán 26.460
33% afsláttur er af vistgjaldi f. börn einstæðra foreldra
30% systkinaafsláttur af öðru barni
100% systkinaafsláttur frá og með þriðja barni
Afsláttarreglur v/ 5 ára barna sjá fundargerð byggðarráðs nr 451
Fæðisgjald leikskólans Ásgarðs
Morgunmatur á mán 1.397
Hádegisverður á mán 3.619
Nónhressing á mán 1.397
Niðurgreiðslur daggjalda hjá dagmæðrum
4 tíma vistun á mán 16.200
5 tíma vistun á mán 20.250
6 tíma vistun á mán 24.300
7 tíma vistun á mán 28.350
8 tíma vistun á mán 32.400
9 tíma vistun á mán 36.450
25% álag vegna barna einstæðra foreldra
25% álag vegna systkina frá og með öðru barni
25% álag ef annað, eða bæði foreldrar í fullu námi.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra
Sundlaug
Fullorðnir sund einstakur miði 350
Fullorðnir 10 miða kort sund 2.540
Fullorðnir 30 miða kort sund 6.120
Fullorðnir árskort sund 27.370
Ljósabekkur.
Ljósabekkur 10 mín. 475
Ljósabekkur 15 mín. 690
Ljósabekkur 20 mín. 950
Ljósabekkur kort 10x10mín 3.800
Sundlaug, pottar og gufubað innifalið
Þrektækjasalur:
Þrektæki fullorðnir stakur miði 520
Þrektæki fullorðnir 5 miða kort 2.120
Þrektæki fullorðnir 10 miða kort 3.740
Þrektæki fullorðnir 30 miða kort 9.280
Þrektæki fullorðnir árskort 43.000
Frítt fyrir unglinga að 17 ára aldri
Sundlaug, pottar, gufubað innifalið.
Leiga á íþróttasal
Fullorðnir, stakur tími 1 klst 615
Fullorðnir, stakur tími 1,5 klst 750
Fullorðnir 0,5 klst x 10 2.500
Fullorðnir 0,5 klst x 20 4.750
Fullorðnir 0,5 klst x 60 11.550
Íþróttasalur árskort, fullorðnir 43.200
Allur salurinn á klst. 4.750
Hálfur salurinn á klst. 3.500
Árskort í íþróttamiðstöð allt innifalið, nema ljósabekkur 63.400
Íþróttamiðstöð, (sundlaug, íþróttahús, þrektækjasalur)
Frítt fyrir börn að 17 ára aldri utan skipulagðra íþróttaæfinga
Frítt fyrir ellilífeyrisþega og 75% öryrkja
Sundföt eða handklæði, leiga hvert skipti 270
Þvottavél og þurrkari, hvert skipti 540
Íþróttamiðstöð,íþróttahús Laugarbakka
Reiknuð afnot skóla og íþróttaf. 1 klst. 3.110
Reiknað verð vegna barna í sundlaug 119
Reiknað verð unglinga í þrektækjasal 1. Klst. 313
Reiknað verð barna í íþróttasal 1 klst 227
Grunnskóli
Hádegisverður á dag 210
Morgunhressing á dag 80
Síðdegisgæsla í grunnskóla
1 klst. í gæslu fyrstu 20 klst. 300
1 klst frá og með 21. klst 210
Síðdegishressing hvert skipti 100
Leiga á skólahúsnæði og tækjum
Skólastofa/matsalur til fundahalda, dagur hvert skipti allt að 4 klst 5.000
Skólastofa/matsalur til fundahalda, kvöld hvert skipti allt að 4 klst 7.500
Skólastofa/matsalur til fundahalda, hver viðbótarklukkustund 1.000
Eldhús útleiga, hvert skipti allt að 4 klst. 15.000
Eldhús útleiga, hver viðbótarklukkustund 2.500
Skjávarpi leiga allt að sólarhringur 5.000
Ljósritun pr. stk. 25
Félagsleg heimaþjónusta
Tekjumörk einstaklinga
Fullar bætur frá TR ( tekjutrygging ellilífeyrisþega kr. 84.344 eða)
örorkulífeyrisþegar kr. 85.592 árið 2008)
Tekjutrygging yfir 72% af fullum bótum á klst. 391
Tekjutrygging undir 72% af fullum bótum á klst. 578
Ef um hjón er að ræða gildir meðaltal ofangreindra bóta
Hámarksgreiðsla einstaklings á mánuði 9.790
Hámarksgreiðsla hjóna á mánuði 14.300
Gjöld eru miðuð við dagvinnutíma, fyrir kvöld-eða helgartíma koma 45% ofan á taxta
dagvinnutíma.
Útsendur fundagerðapakki
Fundargerðir teknar fyrir
á hverjum sveitarstjórnarfundi hver pakki 1.000
Bókasafn, árskort 2.000
Fjarfundastofa
Húsaleiga, hvert skipti allt að 4 klst. 7.500
Skjávarpi, leiga allt að sólarhringur 5.000
Námsmenn greiði skilagjald fyrir lykil að stofu 5.000
Námsmenn greiði ekki fyrir náms-og prófaaðstöðu
Félagsmiðstöð leiga pr. klst. 2.750
Hundaleyfisgjöld 3.200
Skráningargjald katta á ári 1.300
Aukanúmer fyrir ketti og hunda 1.000
Sorpeyðingargjald-fyrirtækja
kr.á kg. 13
Áhaldahús
útseld vinna- tæki og fl.
Á alla þjónustu sem seld er frá Áhaldahúsi og vélamiðstöð leggst 24,5% vsk.
Verkamaður klst. 2.426
Vélamaður klst. 2.426
Verkstjóri klst. 3.639
Garðyrkjustjóri klst. 3.639
ID 2126 traktor klst. 2.910
Fermec grafa klst. 3.399
Loftpressa (dregin) klst. 1.898
Jarðvegsþjappa daggj. 4.004
Borvél SDS Högg daggj. 1.898
Brot/borhamar 18 joul daggj. 3.399
Háþrýstidæla raf. 100 bör daggj. 3.883
Kerrur litlar daggj. 2.794
Rafmagnshandsnitti daggj. 2.541
Rafstöð 5.5 kW. daggj. 3.278
Sverðsög daggj. 1.639
Ýmis Smáverkfæri daggj. 693
Vatnsdæla Honda 3" bensín daggj. 2.541
Vatnsdæla Brunn daggj. 1.271
Vinnupallar daggj. 1.914
Garðáhöld útleiga, virðisaukaskattur 24,5% leggst við útleigu
Sláttuorf daggj. 1.903
Hekkklippur daggj. 1.529
Keðjusög daggj. 2.063
Sláttuvél án drifs daggj. 1.529
Slökkvilið útseld vinna og tækjaleiga
Slökkviliðsmaður klst. 4.510
Tankbíll klst. 5.610
AO 161 klst. 5.500
TR 418 klst. 3.960
Gjaldskrá fyrir garðslátt
Sleginn garður U-vinna lítill hvert skipti 4.510
Sleginn garður U-vinna meðal hvert skipti 6.160
Sleginn garður U-vinna stór hvert skipti 7.920
Aðrir stórir garðar t.d. Kirkjugarðar kr á m2 15
Ellilífeyrisþegar og 75% öryrkjar fá 30% afsl. af taxta
Gjaldskrá vegna geymslusvæða í Grænulaut
Syðir-Kárastöðum
A. 1-25 m2 svæði á mánuði 578
B. 26-50 m2 svæði á mánuði 1.040
C. 51-75 m2 svæði á mánuði 1.386
D. 76-100 m2 svæði á mánuði 1.733
Lágmarksgjald miðast við þriggja mánaða leigu í hverjum gjaldflokki.
Samþykkt með 6 atkvæðum.
Gjaldskrá móttöku –og flokkunarstöðvar
Húnaþings vestra frá 1. janúar 2009.
Innheimt verður fyrir móttöku úrgangs sem hér segir:
• Rekstraraðilar greiða fyrir móttöku alls úrgangs að undanskildum þeim úrgangsflokkum sem bera úrvinnslu- eða skilagjald.
• Almenningur greiðir einungis fyrir úrgang sem ekki getur talist falla til við daglegan heimilisrekstur. Það á t.d. við um:
• Úrgang frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis og lóða
• Úrgang frá bifreiðaviðgerðum o.fl.
Móttökugjöld fyrir einstaka farma:
Flokkur 1. Flokkað. Til endurvinnslu eða frekari meðhöndlunar.
• Timbur
• Járn/málmar
Allt að,
0, 25 (1/4) m³ 0,50 (1/2) m³ 0,75 (3/4) m³ 1 m³
415 kr. 825 kr. 1.240 kr. 1.650 kr.
Flokkur 2. Óflokkað. Blandaður og grófur úrgangur.
• Blandaður pressanlegur úrgangur sem fer ekki í skilgreindan endurvinnsluferil.
• Grófur úrgangur sem þarf að flokka og vinna sérstaklega.
Allt að,
0, 25 (1/4) m³ 0,50 (1/2) m³ 0,75 (3/4) m³ 1 m³
690 kr. 1.375 kr. 2.065 kr. 2.750 kr.
Úrgangur án gjalds flokkaður án aðskotahluta
• Pappír dagblöð, tímarit, auglýsingabæklingar, skrifstofupappír.
Eftirtaldar úrgangstegundir bera úrvinnslu-eða skilagjald og því þarf ekki að greiða gjald fyrir móttöku þeirra:
• Umbúðir úr sléttum pappa; fernur, morgunkornspakkar, umbúðir ýmiskonar án plasts.
• Filmuplast litað og/eða áprentað, án aðskotahluta.
• Bylgjupappi án aðskotahluta.
• Hjólbarðar.
• Spilliefni
Spilliefni.
Móttaka spilliefna fer fram á móttöku og flokkunarstöð. Frá heimilum er tekið við spilliefnum t.d. hreinsiefnum, málningu, þynni, leysiefnum, rafhlöðum, stíflueyði, úðabrúsum og viðhaldshlutum véla og bifreiða t.d. frostlög, olíuefnum og rafgeymum. Frá fyrirtækjum er tekið við spilliefnum t.d. olíum, sýrum, prentlitum, klórmenguðu efni, tjöruleysi o.fl. Ekki verður innheimt gjald vegna móttöku spilliefna.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
GJALDSKRÁ
FYRIR HAFNARSJÓÐ
Húnaþings vestra
Almenn ákvæði.
1. KAFLI.
Virðisaukaskattur, 24,5% leggst á öll gjöld nema þjónustu við millilandaskip.
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir hafnarsjóð Húnaþings vestra er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.
Gjaldskráin er við það miðuð að hafnarsjóður Húnaþings vestra geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna sbr. 3. gr. 5. tölulið hafnalaga..
Um gjaldtöku tengdri stærð skipa.
2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.
Skipagjöld.
4. gr.
Lestargjöld:
Af öllum skipum skal greiða lestagjald, kr. 8,83 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
Bryggjugjöld:
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:
Skip við bryggju kr. 2,19 á mælieiningu skv. 2. gr. fyrir hverja byrjaða 12 tíma, sem skip liggur bundið, hámark 26 sinnum í mánuði.
Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 57,75 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 6.320 á mánuði. Bátar minni en 20 BT greiði þó aldrei lægra en kr. 4.136 á mánuði.
Vörugjöld.
5. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.
6. gr.
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.
7. gr.
Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.
Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
8. gr.
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:
a) Umbúðir sem endursendar eru.
b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.
9. gr.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóra eða afgreiðslumanni skips er skylt að láta hafnarverði í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
10. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
Vörugjaldskrá:
1. fl.: Gjald kr. 165,77 fyrir hvert tonn:
Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.
2. fl.: Gjald kr. 319,33 fyrir hvert tonn:
Lýsi og fiskimjöl.
3. fl.: Gjald kr. 344,85 fyrir hvert tonn:
Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og
byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.
4. fl.: Gjald 1,60%. Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.
Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildar-verðmætis.
Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað,, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað..
Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds..
Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er kr 3.415. fyrir hvert tonn.
Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 123
Leiga á gámasvæði-geymsla veiðarfæra.
11. gr.
Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi (gáma og báta):
Geymsla fyrir 20 feta gám kr. 1.732 á mánuði.
Geymsla fyrir 40 feta gám kr. 2.310 á mánuði
Uppistöðugjald smábáta kr. 2.079 á mánuði.
Geymsla á veiðarfærum á hafnarsvæði. Frítt fyrsta mánuðinn síðan 578kr. á viku.
Festargjöld.
12. gr.
Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu kr. 4.620 á dagvinnutímabili
Festargjald fyrir hverja afgreiðslu kr. 6.930 utan dagvinnutímabils.
Sé fleiri en einn maður notaður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann kr. 4.620 á dagvinnutímabili og kr. 6.930 utan dagvinnutímabils.
Vatnssala.
13. gr.
Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju:
Afgreiðslugjald kr. 1.848 hvert skipti..
Vigtargjald.
14. gr.
Almenn vigtun kr.97 á tonn.
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun kr. 602.
Gjald vegna dagvinnu við vigtun kr. 1.502 á klst.
Gjald vegna yfirvinnu við vigtun (eftir kl: 18:00) kr. 2.717 á klst.
Rafmagn.
15. gr.
Raforkusala 9,35 kr/kwst.
Tengigjald :
Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald kr. 1.271
Hafnarverndargjald.
16. gr.
Af hverju skipi sem leggst við verndaða hafnaraðstöðu skal greiða sérstakt öryggisgjald.
Öryggisgjald fyrir hverja skipakomu kr. 15.015
Öryggisgæsla pr. öryggisvörð í dagvinnu kr. 1.964
Öryggisgjald pr. öryggisvörð í yfirvinnu kr.3.581
Um innheimtu og greiðslu gjalda.
17. gr.
Hafnarstjóri sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari og skal greiða gjöldin á skrifstofu sveitarfélagsins. Heimilt er að leita samþykkis skrifstofunnar til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
18. gr.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Húnaþings vestra vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
19. gr.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
20. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. Hafnalaga nr. 61/2003. Hafnarsjóði Húnaþings vestra er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
21. gr.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.Hafnarsjóði Húnaþings vestra er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari,sbr. 3.tl.3.gr. laga nr.50/1998 um virðisaukaskatt.
Gildistaka.
22. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir hafnarsjóð Húnaþings vestra er sett skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.
Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2009 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur út gildi gjaldskrá fyrir hafnarsjóð Húnaþings vestra frá 01.01.2008.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
GJALDSKRÁ
Hitaveitu Húnaþings vestra
1. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra selur heitt vatn úr hitaveitukerfum þeim, sem
gerð hafa verið eða kunna að verða gerð í lögsagnarumdæmi sveitarfélagsins Húnaþings vestra og hún hefur umráðarétt yfir eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari sbr. reglugerð nr. 63/2001 með síðari breytingum staðfesta af iðnaðarráðherra fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra.
2. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar
hennar í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu. Hitaveitan lætur setja rennslismæli eða stillanlegan hemil fyrir hámarksrennsli til hvers upphitunarkerfis og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selt heitt vatn við rúmmetra samkvæmt rennslismælinum eða það hámark, sem hemillinn er stilltur á. Hitaveitan ræður gerð rennslismæla og hemla og sér um viðhald og endurnýjun þeirra.
3. gr.
Einungis starfsmenn hitaveitunnar mega breyta stillingu innsiglaðra tengihluta.
Hitaveitan breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrsta árið, sem hús hans er tengt við hitaveitukerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við hitaveituna fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt vatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1 mínútulíter. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.
Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal hitaveitan greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða Hitaveita Húnaþings vestra, eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.
4. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra rekur 3 aðskilin hitaveitusvæði og dreifikerfi með
vatni sem hefur mismunandi hita eftir svæðum. Þessi svæði eru á Hvammstanga við Miðfjörð, á Laugarbakka í Miðfirði og á Reykjatanga við Hrútafjörð. Gjald fyrir eininguna af heitu vatni (m3 eða l/mín) verður því mishátt eftir svæðum.
5. gr.
Gjöld fyrir afnot af hitaveituvatninu eru sem hér segir:
a) Hvammstangaveita skv. mæli kr. 88 pr. m3
b) Laugarbakkaveita skv. mæli kr. 63 pr. m3
c) Reykjatangaveita skv. mæli kr. 63 pr. m3
d) Hvammstangaveita skv. hemli kr. 1.880 pr. mín.lítra
e) Laugarbakkaveita skv. hemli kr. 1.346 pr. mín.lítra
f) Reykjatangaveita skv. hemli kr. 1.346 pr. mín.lítra
g) Fastagjald hemils eða mælis, allar veitur kr. 950 á mánuði
h) Vatnsgjald skv. mæli fyrir gróðurhús kr. 14,53 pr. m3
i) Vatnsgjald skv. mæli fyrir sundlaugar skal vera 25% af taxta viðkomandi veitna
j) Lokunargjald kr. 3.053
6.gr.
Heimæðargjald Hitaveitu Húnaþings vestra skal vera sem hér segir fyrir eina heimæð:
Rúmmál húss (utanmál) Heimæðargjald
Allt að 400-2.000m3 = 201.264 kr. fyrir allt að 400m3 og 155 kr/pr. m3 þar yfir
2.000-6.000m3 = 455.979 kr. fyrir 2.000m3 og 142 kr/pr. m3 þar yfir
6.000-10.000m3 =1.012.020 kr. fyrir 6.000m3 og 135 kr/pr. m3 þar yfir
10.000m3 =1.523.705 kr. fyrir 10.000m3 og 97 kr/pr. m3 þar yfir
Stofngjald fyrir hvern aðrennslismæli umfram einn á sama inntak er kr. 33.645
Sé um óskipulagt svæði að ræða, eða aðstæður óvenjulegar, er heimilt að krefjast sérstaks aukagjalds af húsráðanda eða gera honum að greiða fyrir heimtaugina samkvæmt kostnaði, en gera skal honum aðvart um það fyrirfram. Rúmmál óeinangraðra reiðskemma og heygeymsla við hesthús skal ekki reikna með við útreikning heimæðargjalds.
7.gr.
Heimæðargjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar 1. nóvember 2008, 463,80 stig. Hitaveitunni er heimilt að breyta heimæðagjöldum þessum í samræmi við breytingu á nefndri vísitölu.
8. gr.
Öll gjöld samkv. gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda skv. 79. gr. laga nr. 58/1967, með síðari breytingum.
9. gr.
Hitaveita Húnaþings vestra hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með fimm daga fyrirvara. Allan kostnað af lokun og opnun greiðir sá sem vanskilum veldur hverju sinni.
Eftirlitsmanni Hitaveitu Húnaþings vestra skal, hvenær sem er, frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerð á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun á heita vatninu.
Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur eins og hann er samkvæmt lögum á hverjum tíma.
Gjaldskrá þessi sem er sett samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 skal taka gildi 1. mars 2009.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 18:50.
Ólafur B. Óskarsson (fundarritari)(sign.), Skúli Þórðarson(sign.),
Guðný Helga Björnsdóttir(sign.), Rakel Runólfsdóttir(sign.),
Heimir Ágústsson(sign.), Guðmundur St. Sigurðsson(sign.),
Stefán Böðvarsson(sign.), Oddur Sigurðarson(sign.).