17. maí 2012
 Starfsemi
 Print   

 Stjórnsýsla
 Print   

 Heimasíður
  

 Umhverfisviðurkenningar

Árlega veitir Húnaþing vestra þeim aðilum viðurkenningu sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið. Veittar eru viðurkenningar í flokki fyrirtækja- og stofnanalóða, einkalóða og fyrir fallegasta bændabýlið. Misjafnt getur verið frá ári til árs í hvaða flokkum viðurkenningar eru veittar.
Í nefndinni eru; Jóhannes Erlendsson, Sigríður Hjaltadóttir, Erla Björg Kristinsdóttir og Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri sem jafnframt er starfsmaður
nefndarinnar.

2010

Barkarstaðaskógur

Ásbraut 2

Núpsdalstunga

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2010

Barkarstaðaskógur
fékk viðurkenningu fyrir  gróskumikla og skemmtilega  skógrækt á afar fallegum stað við Austurárgil í Miðfirði. Ragnar Benediktsson og hans afkomendur sem eiga landið og rækta það og hirða.
Ásbraut 2 fékk viðurkenningu fyrir fallega og gróna einkalóð, vel hefur verið hugað að hirðingu lóðarinnar. Eigendurnir eru garðyrkjufræðingurinn Fjóla Eggertsdóttir og Garðar Hannesson.
Núpsdalstunga fékk viðurkenningu fyrir snyrtilega og fallega bújörð. Mikið hefur verið plantað af trjám á jörðinni. Sólrún Þorvarðardóttir og Börkur Benediktsson eru eigendur Núpsdalstungu.

Leó Örn Þorleifsson Oddviti, Sólrún og Börkur Núpsdalstungu, Garðar og Fjóla Ásbraut 2, Ragnar fyrir Barkarstaðaskóg, Jóhannes og Erla Björg úr dómnefndinni.

 

2009

Laugarbakki

Brautarland

Brekkugata 14

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2009

Gunnar Kristófersson og Guðrún Sigurðardóttir eigendur eignarinnar Laugarbakka sem stendur við Reykjagrund á Laugarbakka fengu viðurkenningu fyrir fallega og vel við haldna lóð sína  sem og húseign. Benedikt Steindórsson og Þórey Eyjólfsdóttir eigendur Brautarlands í Víðidal fengu umhverfisviðurkenningu. Virkilega falleg ásýnd að Brautarlandi, þar sem gróðri er vel við haldið og snyrtimennskan til fyrirmyndar. Guðmundur St. Sigurðsson og Valgerður Valgeirsdóttir fengu viðurkenningu fyrir fallega og vel hirta lóð sína að Brekkugötu 14 á Hvammstanga.

2008

Sveitasetrið Gauksmýri

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2008

Sveitasetrið Gauksmýri fékk viðurkenningu, þar hafa eigendurnir Sigríður Lárusdóttir og Jóhann Albertsson unnið gjöfult starf í umhverfismálum og hafa gert sína eigin umhverfisstefnu þar sem virðing fyrir náttúrunni er í hávegum höfð.(http://www.gauksmyri.is/umhverfisstefna.htm. Stóra-Ásgeirsá fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt og vel hirt sveitabýli. Hús eru vel máluð og mikið hefur verið plantað af trjám. Hvammstangabraut 19, Hvammstanga fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegan og gróin garð þar sem eigendurnir hafa af natni hugað vel að hirðingu lóðar.

 

2007

Klambrar í Vesturhópi.

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2007


Eggert Ó Levý og Álfhildur Pálsdóttir fengu umhverfisviðurkenningu vegna Klambra í vesturhópi fyrir vel heppnaðar endurbætur á húsi og umhverfi þess og svo einnig við lóð þeirra að Garðavegi 12. Selasetur Íslands hlaut einnig umhverfisviðurkenningu fyrir góðar endurbætur á húsi og lóð við setrið og er hin mesta prýði fyrir þá sem leið eiga um. Sigurbjörg Friðriksdóttir og Skúli Þórðarson eigendur Hjallavegs 18 hlutu umhverfisviðurkenningu fyrir vel skipulagðan, snyrtilegan og opin garð. Við Vonum að það verði hvatning fyrir aðra að opna meira inn í garða sína svo fleiri geti notið við.


Hrafnhildur Ýr fh. Selaseturs Íslands, Sigurbjörg, Skúli, Eggert, Álfhildur og Ína Björk Umhverfisstjóri 

2006
 

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2006 

Farfuglaheimilið Ósum hlaut viðurkenningu í flokki bændabýla og fyrirtækja fyrir vel heppnaðar endurbætur og fallega ásýnd sem gömul og ný mannvirki skapa. Þá hlaut Höfðabraut 15, Hvammstanga umhverfisviðurkenningu í flokki einkalóða fyrir hlýlegan og vel skipulagðan lystagarð sem ber eigendum sínum gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.

Nefndarmenn: Arnar Birgir Ólafsson, Sigríður Hjaltadóttir, Hulda Einarsdóttir, Erla Björg Kristinsdóttir.

2005 

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2005

Það var ákveðið að veita veita Hvammstangabraut 28 og versluninni Hlín á Hvammstanga hvoru tveggja í eigu hjónanna Sigurbjargar Dagbjartar Jónsdóttur og Hermanns Ívarssonar umhverfisviðurkenningu fyrir fallegar og snyrtilegar eignir.

Nefndarmenn: Sigríður Hjaltadóttir, Arnar Birgir Ólafsson, Árborg Ragnarsdóttir, Hulda Einarsdóttir.


2004 

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2004

Umhverfisviðurkenningar hlutu að þessu sinni systurnar Ólöf og Guðjóna Valdimarsdætur og fjölskyldur þeirra fyrir umhverfið við sumarhús þeirra að Kolþernumýri, en þær búa í Reykjavík. Einnig hlautu viðurkenningu Erla Björg Krisinsdóttir og Sveinn Ingi Bragason fyrir Brekkugötu 12 fyrir fallegan og vel skipulagðan lystigarð.

Nefndarmenn: Arnar Birgir Ólafsson, Sigríður Hjaltadóttir.

2003 

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2003

Húseigendur við Hvammstangabraut 29 og 31, þau Hrólfur Egilsson og Guðrún Hauksdóttir og Ágúst Oddson og Elísabet Einarsdóttir en þau eiga samliggjandi lóðir.Þá hlaut Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga umhverfisviðurkenningu. Bændabýlið Sauðadalsá, þar sem ábúendurnir eru Heimir Ágústsson og Þóra Þormóðsdóttir fengu einnig viðurkenningu. Allir fengu viðurkenningarskjal úr höndum Elínar R. Líndal formanni Byggðarráðs Húnaþings vestra. 

Nefndarmenn: Arnar Birgir Ólafsson, Sigríður Hjaltadóttir, Hulda Einarsdóttir, Árborg Ragnarsdóttir.

Sigurður Eiríksson á Hvammstanga afhenti Guðmundi H. Sigurðssyni teikningar og gögn sem hann átti í fórum sínum frá upphafi ræktunar trjágarðs um Heilbrigðisstofnunina Hvammstanga. Frumgerð skipulags var eftir Óla Val Hanson. Fegrunarfélagið, sem annaðist gerð garðsins, var stofnað árið 1957 og stóð m.a fyrir skemmtun á sumardaginn fyrsta. Ágóði skemmtunarinnar rann síðan til kaupa á trjáplöntum í garðinn. Nú er þessi garður með þeim fegurstu blettum á staðnum, mörg grenitrén eru 8-10 metra há. Má telja þennan árangur kraftaverk í trjárækt við kalda sjávarströnd Húnaflóa.

                                                                                    Karl Sigurgeirsson
2002 

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2002

1. Aðkoma og umhverfi sveitabýla: Umhverfisnefnd veitir Vatnshól í Húnaþingi vestra viðurkenningu fyrir snyrtilega aðkomu og umhverfi þar sem samræmi er í litavali bygginga skapar fallega heildarmynd.
2. Fyrirtækjalóðir: Umhverfisnefnd veitir Sparisjóði Húnaþings og Stranda Hvammstangabraut 5, Hvammstanga viðurkenningu fyrir fallegt aðkomusvæði viðskiptavina þar sem meðal annars er gert ráð fyrir aðgengi fyrir fatlaða. Jafnframt er sparisjóðslóðin í góðri rækt, hlýleg og vel við haldin.
3. Einkalóðir: Umhverfisnefnd veitir húseigendum að Garðavegi 17 Hvammstanga viðurkenningu fyrir fallegan garð þar sem fjöldi jurta skarta sínu fegursta í mikilli litadýrð og bera eigendum sínum vitni um umhyggju og atorku.

Nefndarmenn: Árborg Ragnarsdóttir, Arnar Birgir Ólafsson, Hulda Einarsdóttir, Sigríður Hjaltadóttir.

2001

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2001

Bændabýlið Nípukot í flokki sveitabæja Gistiheimili Hönnu Siggu í flokki fyrirtækja og Hvammstangabraut 43 í flokki einkalóða.

2000

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2000

1. Fyrirtæki eða félagasamtök: Hestamannafélagið Þytur fyrir nýgert og fallegt mótssvæði í Kirkjuhvammi sem unnið var að miklu leyti í sjálfboðavinnu félgasmanna sem minnir á gamla ungmennafélagsandann eins og hann var bestur.
2. Sveitabýli: Akurbrekka fyrir sérlega snyrtilegt sveitabýli. Snyrtimennskan hefur verið þar í fyrirrúmi í gegnum árin svo eftirtekt hefir hlotið.
3. Garðar við hús í sveit eða þéttbýli: Höfðabraut 7 fyrir snyrtilegan garð séð frá götu. Plöntur fjölbreyttar og vel hirtar.

Nefndarmenn: Árborg Ragnarsdóttir, Ólöf Sigurbjartsdóttir, Sigríður Hjaltadóttir.

1999

Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 1999

Hvammstangabraut 3, Ragnar Árnason og Helena Svanlaug Sigurðardóttir fyrir fallegan og vel hirtan garð, ævintýrapersónur njóta sín vel í garðinum.

Bjarg, Þorvaldur Pálsson fyrir vel hirtan og snyrtilegan sveitabæ, íbúðarhús og útihús eru vel máluð og allt umhverfið hreint og snyrtilegt.

Ferðamannabærinn Dæli, Sigrún Valdimarsdóttir og Víglundur Gunnþórsson fyrir fyrirtæki þar sem snyrtimennska er áberandi, gróður er orðin áberandi í umhverfi fyrirtækisins sem gefur því hlýlegan blæ.

Nefndarmenn: Ársæll Daníelsson, Ólöf Sigurbjartsdóttir, Sigríður Hjaltadóttir.

 

 Print   

 Fundargerðir
  

 Nýjar fundargerðir
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

Húnaþing vestra S: 455-2400 og fax 455-2409
  Innskráning