17. maí 2012
 Starfsemi
 Print   

 Stjórnsýsla
 Print   

 Heimasíður
  

 Umhverfisfréttir
ágú.4 4.8.2009 15:05:00 - Helena Halldórsdóttir

Í sumar komu til Hvammstanga ungmenni frá ýmsum löndum og voru þau hér í samvinnu við Veraldarvini  að vinna í ýmsum verkefnum í Húnaþing vestra, til dæmis við Unglistarhátíðina Eldur í Húnaþingi, ásamt því að kynnast staðháttum, þjóð og menningu. Þau unnu líka með í Vinnuskólanum og komu þá að verkefnum eins og réttarmálun, gróðursetningu og fleira. Þau komu til Hvammstanga á þriðjudeginum 14. júlí, þann dag var lítið gert annað en að finna íverustaðinn og koma sér fyrir. Þau fengu góða aðstöðu í Grunnskóla Húnaþings Vestra, skólastofur til að sofa í og eldhúsaðstöðu.

Á miðvikudaginn fór þau inn að Hrútatungurétt, þar sem Matthildur Hjálmarsdóttir á Þóroddsstöðum og Katrín í Brautarholti, höfðu undirbúið góðan dag. Þær höfðu fjárfest í timburolíu og penslum, því það þurfti að bera á réttina. Dagurinn var voða hráslagalegur, með norðan strekking og þungbúnum skýjum, sem betur fór rigndi þó ekki.
 
Í hádeginu höfðu þær Matta og Katrín eldað dýrindis kjötsúpu sem var gott að fá til að ylja sér við. Þeim fannst súpan ekki svo slæm og voru þónokkrir sem fóru aðra ferð og voru þau ánægð að fá svona íslenskan og þjóðlegan mat.
Vinnutími dagsins entist ekki til að klára alla réttina svo þau komu hingað á Hvammstanga og elduðu sér kvöldmat og höfðu notalegt kvöld.

Daginn eftir fóru þau og unnu í Kvenfélagsgarðinum Bjarkarási. Þar grisjuðu þau tré með Birni  Þorgrímssyni, hann sagaði niður greinar og tré á meðan þau hirtu til eftir hann. Um kvöldið bauð Brynja Bjarnadóttir þeim í fiskisúpu, einnig hlustuðu þau á íslenskar þjóðsögur sem þeim fannst dálítið drungalegar á köflum. Einnig fannst þeim gaman að fá að vera eins og hluti af íslenskri fjölskyldu.

Á föstudeginum grisjuðu þau tré í Skólagörðunum og undirbjuggu tyrfingu í kringum komandi matjurtagarða. 


 
Þetta var nokkrum tré sem þau höfðu unnið með og þurfti að vökva, svo þau hringdu í Slökkviliðið og báðu þau að vökva fyrir sig.
 
Þetta var kærkomin hjálp sem var vel þeginn. Þegar vinnu lauk fóru þau í gönguferð upp í Hvamm og gengu mestan part gönguleiðarinnar. Útsýnið fannst þeim yndislega og þau fengu gott veður. Eftir heimkomu og sturtur kíktu þau á Café Sirop og var kvöldið hið skemmtilegasta.

Á laugardeginum fór þau Vatnsneshringinn og skoðuðu merka staði. Daníel Geir Sigurðsson, Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, Hafþór Magnús Kristjánsson og Sigurður Hólm Arnarsson keyrðu þau um á tveim bílum, hvíta vinnuskólakagganum og húsbíl sem Sigurður Hólm á. 
Fyrsta stopp var hjá Ánastaðastapa og fóru þau að hvernum í Skarði þar sem allir stungu tánum ofan í. Reyndar gekk einn aðeins lengra, Phillip fækkaði nokkrum fötum og hoppaði alveg ofan í hverinn. 
 

Næsta stopp var hjá Svalbarða þar sem þau fengu að berja seli augum, sem betur fór höfðu þau sjónauka þar sem þeir voru flestir langt í burtu.
Á Illugastöðum hlupu þau að kríuvarpinu og höfðu aldrei áður séð slíka ,,Killer Bird" (drápsfugla). Einnig fannst þeim fyndið að ógnaraðferð kríunnar væri að skíta á viðkomandi til að hræða á brott ... enda varð  einn þeirra fyrir slíkri árás kríunnar. Sem betur fór var enginn gaggaður.
Þá fóru þau að Illugastöðum og voru svo heppin að sjá selina miklu betur þar. Þau fóru inn í húsið og fengu að heyra sögu Natans Ketilssonar og síðustu aftökuna, sem þeim fannst heldur óhugnanleg.
 
Nokkuð merkilegt fannst þeim að sjá Hvítserk en þegar þau komu að Þverárrétt voru þau öll send út úr bílnum og sagt að labba upp í fjall! Þau gengu upp með ánni og upp að fossinum og voru nánast að niðurlotum komin þegar þau sáu glitta í litla kistu og reyndist sú kista full af mat og góðgæti, öllum til mikillar ánægju.
Um kvöldið var grillaður góður matur og fannst þeim þetta komast næst hápunkti ferðarinnar. Seinna var svo aftur kíkt á Café Sirop þar sem setið var og spjallað framundir rauðan morgun.

Á sunnudeginum fóru þau í Hamarsrétt þar sem Gudrun M.H. Kloes hafði undirbúið málningarvinnu á Hamarsbúðinni. Vegna partýsins kvöldinu áður var hópurinn frekar þreyttur í morgunsárið og fram undir hádegi. Verkið gekk þó vel og fóru þau því og skoðuðu skreið sem þau fengu að smakka. Flestir grettu sig og geifluðu vegna óbragðs, nema Etienne frá Frakklandi sem var nánast óstöðvandi.
 

Gudrun hafði undirbúið hádegismat og var allt hráefni séríslenskt eins og gulrætur, kartöflur og kál. Þetta fannst krökkunum einstaklega góð hugmynd og góður matur.

Þau fóru á mánudeginum upp í Hvamm þar sem þau löguðu girðinguna í kringum kirkjuna. Þau þurftu að skrapa gömlu málninguna af, grunna og mála upp á nýtt. Sigurður Grétar Sigurðsson kom og grillaði æðislegt lambakjöt fyrir hópinn, voru víst sumir að smakka þessháttar kjöt í fyrsta skipti. Fannst þeim nokk sérstakt hvað grillið var nálægt kirkjunni og stóð þeim ekki á sama á stundum. Við þökkum Sigurði Grétari kærlega fyrir aðstoð hans og frábært kjöt.
Seinna sama dag fengu þau að fara í Kidka ehf, Prjónastofuna og fengu að rölta um verksmiðjuna bæði til skoðunar og kaupa.

Á þriðjudeginum kláruðu þau Hrútatunguréttina, verkið gekk svo vel að þau ákváðu að fara í Byggðarsafnið. Þar tók Ingibjörg Jóna Gestsdóttir  á móti þeim og veitti þeim frían aðgang sem við þökkum kærlega fyrir. Þeim fannst ekki mikið koma til byggingarinnar að utan og urðu því undrandi að sjá hvað væri mikilfenglegt innandyra.
Sama þetta kvöld fengu þau íslenskukennslu hjá Laura Ann Howser þar sem þau lærðu það helsta eins og góðan daginn, góða kvöldið, takk, já, nei og fleira. Seinna hengdu þau upp þvottasnúrur hjá félagsheimilinu og hengdu föt á. Þeim fannst það skrítið en skemmtilegt.


 

Pawel (Póllandi), Asier (Spáni), Kira (flokkstjóri, Þýskalandi), Aitor (Spáni), Paulina (Póllandi)
Etienne (Frakklandi), Olivier (Belgíu), Héléne (Frakklandi)
Karoline (Tjékkóslovakíu), Diego (Spáni), Philipp (Þýskalandi)

 

Svo kom unglistarhátíðin sjálf

Miðvikudagurinn fór í undirbúning, þau röðuðu upp í Félagsheimilinu fyrir opnunarhátíðina, settu stomptunnur hjá Nytjamarkaðnum og gerðu vigtarskúrssjoppuna tilbúna. Einnig gerðu þau skilti fyrir harmonikkubattlið og voru dugleg að finna til og hjálpa með það sem þurfti fyrir kvöldið.

Á fimmtudeginum fóru nokkrir í leiki á Mjólkurstöðvartúninu og komu með leiki frá sínum heimalöndum, á meðan aðrir gerðu Félagsheimilið klárt fyrir breikdansnámskeið og heimsmeistaramótið í Kleppara. Gunnhildur tók að sér að kenna þeim Kleppara svo þau gætu átt möguleika á að keppa á móti heimsmeisturunum.

Föstudeginum var eytt í undirbúning fyrir fyrirtækjakeppnina, þurfti að redda þrautum, stórum púslum og verkefnum sem þurfti að leysa. Þetta var mjög vel gert og voru þau orðin spennt fyrir næsta degi til að sjá hvernig allt hefði nú heppnast. Seinnipart dagsins fóru þau í Borgarvirki, þar sem þau settu upp tjald, friðarkerti, hljóðkerfi, skilti og fleira. Það rigndi af og til og ekki var of hlýtt, en Gunnhildur sá við því og bauð þeim heim til foreldra sinna á Stóru-Borg í súpu og brauð. Á tónleikunum um kvöldið skenktu þau heitu kakói handa gestum og hjálpuðu til við frágang og gekk allt mjög vel. Um kvöldið sátu þau á tónleikum Kimi Records á Café Sirop.

Á laugardeginum komu þau hoppuköstulunum fyrir og sáu um allan undirbúning að sápuboltanum, einnig grilluðu þau pulsur handa gestum og gangandi og sáu um að gefa gos, mála börn í framan, sáu um gæslu á hoppuköstulunum og margt fleira. Fyrirtækjakeppnin gekk vel og fannst Veraldarvinum þetta vera mjög skemmtilegt og voru vonum framar hvað allt hefði gengið vel. Við tók svo undirbúningur sem gekk vel, því stefnan var tekin á ball um kvöldið með Skítamóral! Fannst þeim stemmingin á ekta sveitaballi vera einstök og sérlega skemmtileg.

Þau lögðu svo land undir fót á sunnudegi. Á sunnudaginn stendur líka til að telja seli  í samvinnu  við Selasetur Íslands.

Húnaþing vestra bauð  þeim á mánadaginn í ferð á hestbak á Gauksmýri. Fyrir nokka  var það fyrsti ferð á hestbak og þótti þeim það mjög gaman. Siðasta verkefnið  á Hvammstanga var að hreinsa gluggana á grunnskólanum að utan, mála  leiki á malbikið fyrir utan og hreinsa grunnskólann þar  sem þau höfðu gist.
 

Veraldarvinahópnum fannst mjög gott  að gista í grunnskólanum.

Á þriðjudeginum voru allir farnir.

Við kunnum öllum þeim sem að heimsókn þeirra komu, okkar bestu þakkir.


Ingibjörg Jóna Gestsdóttir
Birgit Kositzke
Björn Þorgrímsson
Brynja Bjarnadóttir
Byggðarsafnið
Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra
Daníel Geir Sigurðsson
Foreldrum Gunnhildar
Gudrun M.H. Kloes
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir
Grunnskóli Húnaþings vestra
Heimamenn á Ánastöðum
Helga Hinriksdóttir
Kathrin Martha Schmitt 
Laura Ann Howser 
Matthildur Hjálmarsdóttir
Prjónastofan (Kidka ehf) 
Sélursetur
Sigurður Grétar Sigurðsson
Sigurður Hólm Arnarsson

og öllum þeir sem lögðu hönd á plóg, bæði sem komu að unglistarhátíðinni og sem gerðu heimsókn Veraldarvina eftirminnilega.

 

Veraldarvinahópurinn, sem gisti í  Húnaþing vestra 14. – 28. júlí 2009

Enn og aftur kærar þakkir allir 

meira...
júl.22 22.7.2009 09:56:00 - Helena Halldórsdóttir

Það hefur nú margt gerst síðan kíkt var á unglingavinnuna síðast.
Þau hafa staðið sig einstaklega vel og komið mörgum hlutum í verk og náð að klára þetta allt.

meira...
  

 Fundargerðir
  

 Nýjar fundargerðir
 Print   

 Nýjar fundargerðir
  

Húnaþing vestra S: 455-2400 og fax 455-2409
  Innskráning