
Staðardagskrá og sjálfbær þróun.
Staðardagskrá 21 er heildaráætlun Húnaþings vestra í samræmi við viðamikla framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun sem gerð var á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu 1992. Áætlunin á að vera nokkurs konar lýsing á því hvernig samfélagið ætlar að tryggja komandi kynslóðum viðunandi lífsskilyrði á jörðinni.
Því miður eimir eftir sums staðar af hinum gamla husgangshætti, að hugsa eingöngu um stundarhaginn, nokkra aura í svipinn, en láta sér standa á sama, hvort gerður er stórskaði öldum og óbornum.
Þannig komst Þorvaldur Thoroddssen að orði eftir ferð sína um Múlasýslur árið 1894. Orð Þorvaldar lýsa vel hugsuninni bak við Staðardagskrárstarfið. Sú hugmynd, að uppfylla þarfir okkar án þess að skerða möguleika komandi kynslóða, hefur verið nefnd sjálfbær þróun. Hugtakið sjálfbær þróun felur í sér kröfu um heildarsýn, að horft sé fram í tímann, en ekki aðeins einblínt á líðandi stund.
Til að stuðla að velferð komandi kynslóða, er óhjákvæmilegt að líta samtímis til náttúrulegra, efnahagslegra og félagslegra þátta. Þetta eru stoðir sjálfbærrar þróunar. Ef einhver þessara þriggja stoða er veikburða eða ekki til staðar, halda hinar tvær ekki til lengdar.
Staðardagskrá 21 er áætlun fyrir alla sem búa á sama stað, unga sem aldna, til að nálgast markmið um sjálfbæra þróun á 21. öldinni.
Staðardagskrárstarfið í Húnaþingi vestra
Frá árinu 1999 hefur sveitarfélagið unnið að gerð staðardagskrár fyrir Húnaþing vestra. Átta manna vinnuhópur auk þáverandi sveitarstjóra og umhverfisfulltrúa sendi frá sér skýrslu, Hugmynd að Staðardagskrá 21 fyrir Húnaþing vestra, til sveitarstjórnar árið 2001. Í skýrslunni voru settar fram tillögur vinnuhópsins hvernig hægt sé að uppfylla ákvæði sjálfbærrar þróunar.
Við gerð aðalskipulags Húnaþings vestra 2002-2014 er gerð grein fyrir innihaldi skýrslunnar þar sem ábendingar og tillögur hennar koma inn á málaflokka aðalskipulagsins.
Í september 2003 samþykkti sveitarstjórn Ólafsvíkuryfirlýsinguna svokallaða. Með því skuldbindur sveitarfélagið sig til að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar, meðal annars með því að virkja íbúa, félagasamtök og aðila í atvinnulífinu til öflugrar þátttöku í verkefnum sem tengjast Staðardagskrá 21 og með því að hafa markmið um sjálfbæra þróun að leiðarljósi við gerð skipulagsáætlana, sem og við aðra ákvarðanatöku um málefni Húnaþings vestra.
Þann 29. desember 2004 samþykkti sveitarstjórn Húnaþings vestra, á 100. fundi sínum, 1. útgáfu af Staðardagskrá 21 fyrir sveitarfélagið. Síðan þá hafa fjölmörg lítil og stór markmið náðst en mikið verk er enn óunnið. Árið 2006 var hluti Staðardagskrárinnar endurskoðaður og samþykktur af sveitarstjórn með gerð Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs 2006-2020.
Ábendingar
Hjálpaðu okkur að bæta samfélagið með því að senda inn tillögur, spurningar eða aðrar ábendingar
Tengd skjöl
Aðalskipulag Húnaþings vestra samþ. greinarg. 2002-2014
Staðardagskrá Húnaþings vestra