
Sorphirða í Húnaþingi vestra er með þeim hætti að heimilissorp er sótt til allra íbúa í þéttbýli og dreifbýli á 14 daga fresti. Húnaþing vestra leggur til sorptunnurnar. Í dreifbýli eru sorpkör sem tæmd eru reglulega og ætluð eru fyrir sumarhúsaeigendur og eigendur húsa sem ekki hafa fasta ábúð. Fyrirtæki, stofnanir og rekstraraðilar annast sín sorpmál sjálf.
Á Hvammstanga er starfrækt söfnunfarstöð fyrir allann úrgang. Utan á girðingu söfnunarstöðvar eru lúgur sem alltaf eru opnar og þar er hægt að skila flokkuðum úrgangi. Stærri förmum af flokkuðum úrgangi skal skilað á opnunartíma stöðvarinnar
------------------------------------------------------------------------------------
Opnunartími Hirðu móttöku- og flokkunarstöðvar fyrir úrgang Höfðabraut 34b Hvammstanga er:
Miðvkikudaga 14:00-17:00
Föstudaga 14:00-17:00
Laugadaga 11:00-15:00
Lögbundna frídaga lokað
-------------------------------------------------------------------------------
Í Grænulaut á Vatnsnesi er urðunarsvæði fyrir heimilissorp og geymslusvæði fyrir brotamálma og timbur. Þar er einnig móttaka á ónýtum bifreiðum og eru íbúar beðnir að gera boð á undan sér í síma 822-5417.
Umhverfis – og garðyrkjustjóri hefur umsjón með sorphirðu, urðun og endurvinnslu í Húnaþingi vestra. Umhverfis- og garðyrkjustjóri er: Ína Björk Ársælsdóttir.
Tengd skjöl
Flokkum og endurvinnum í Húnaþingi vestra-bæklingur 2008
Jarðgerð
Gjaldskrá Hirðu,móttöku- og flokkunarstöðvar 2012
Gjaldskrá sorpeyðingar, fyrirtæki 2012
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2006-2020
Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2004-2016
Samþykkt um sorphirðu
Reglugerð um meðhöndlun úrgangs
Starfsleyfi fyrir urðunarstað Húnaþings vestra
Samtals sorpmagn 2010
Samtals sorpmagn 2009
Samtals Sorpmagn 2008