
Sorphirða í Húnaþingi vestra er með þeim hætti að heimilissorp er sótt til allra íbúa í þéttbýli og dreifbýli á 10 daga fresti. Húnaþing vestra leggur til sorptunnurnar. Í dreifbýli eru læst kör sem tæmd eru reglulega og ætluð eru fyrir sumarhúsaeigendur og eigendur húsa sem ekki hafa fasta ábúð. Eigendur þessara eigna geta nálgast lykil að ílátunum á skrifstofu Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5. Fyrirtæki, stofnanir og rekstraraðilar annast sín sorpmál sjálf.
Á Hvammstanga er starfrækt móttöku– og flokkunarstöð. Þar eru gámar fyrir; timbur, brotamálma, gler, burðarhæfan jarðveg, gróðurúrgang, hjólbarða, kælitæki, ónýt húsgögn, bylgjupappa og spilliefni. Einnig eru þar gámar fyrir fernur/sléttan pappa og blöð/tímarit. Á Hvammstanga er einnig tekið við gömlum lyfjum, nálum og sprautum og rafhlöðum. Verktaki sér um söfnun á rúlluplasti.
------------------------------------------------------------------------------------
Opnunartími Hirðu móttöku- og flokkunarstöðvar fyrir úrgang Höfðabraut 34b Hvammstanga er:
Mánudaga og þriðjudaga 11-14
Miðvikudaga 14-17
Fimmtudaga, Föstudaga og Laugadaga 11-14
Sunnudaga og hátíðisdaga LOKAÐ
-------------------------------------------------------------------------------
Í Grænulaut á Vatnsnesi er urðunarsvæði fyrir heimilissorp og geymslusvæði fyrir brotamálma og timbur. Þar er einnig móttaka á ónýtum bifreiðum og eru íbúar beðnir að gera boð á undan sér í síma 822-5417.
Umhverfis – og garðyrkjustjóri hefur umsjón með sorphirðu, urðun og endurvinnslu í Húnaþingi vestra. Umhverfis- og garðyrkjustjóri er: Ína Björk Ársælsdóttir.
Tengd skjöl
Sorphirðudagatal 2011
Flokkum og endurvinnum í Húnaþingi vestra-bæklingur 2008
Jarðgerð
Gjaldskrá Hirðu,móttöku- og flokkunarstöðvar 2011
Gjaldskrá sorpeyðingar, fyrirtæki 2011
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2006-2020
Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2004-2016
Samþykkt um sorphirðu
Reglugerð um meðhöndlun úrgangs
Starfsleyfi fyrir urðunarstað Húnaþings vestra
Samtals sorpmagn 2010
Samtals sorpmagn 2009
Samtals Sorpmagn 2008