
Heimilisfang: , 530 Hvammstanga
Opnun: 9-16
Sími: 455-2400
Netfang: felagsmalastjori@hunathing.is
Í byrjun árs 2002 tók gildi 5 ára þjónustusamningur milli félagsmálaráðuneytis og sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem sveitarfélögin tóku að sér rekstur sambýlia og alla umsjón með málefnum fatlaðra. Samningurinn hefur verið endurnýjaður 2006 og gildir núverandi samningur til 2012.
Ásta Þorsteinsdóttir, þroskaþjálfi veitir upplýsingar og ráðgjöf um málefni fatlaðra þ.m.t. umönnunarbætur, útvegun stuðningsfjölskyldna, liðveislu fatlaðra, ferlimál fatlaðra ásamt öðru er við getur átt.
Sambýli fyrir fatlaða einstaklinga hefur verið rekið í Vestur-Húnavatnssýslu frá árinu 1990. Upphaflega var sambýlið starfrækt að Gauksmýri í Línakradal en var flutt til Hvammstanga árið 1996. Árið 2002 var byggt við sambýlið og jafnframt ráðist í umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði. Nú er þjónusta við íbúa sambýlisins með því besta er þekkist þar sem hver heimilismaður hefur fengið úthlutað sérstakri íbúð til eigin nota. Heimilismenn sambýlisins eru nú 5 og starfsmenn 6 í 6 stöðugildum. Sambýlið er til húsa að Grundartúni 10-12.
Iðja er vinnustofa fyrir fatlaða einstaklinga í Húnaþingi vestra þar sem starfsmenn sinna verkefnum af ýmsu tagi fyrir fyrirtæki og félagasamtök. Eitt stöðugildi er tengt starfsemi Iðju. Iðja er til húsa að Brekkugötu 14 á Hvammstanga.
Starfsmenn
Forstöðumaður:
Jón Ingi Björgvinsson
Netfang: mfhv@simnet.is
Sími: 893-3840
Starfsmaður Iðju:
Helga Sigurhansdóttir.
Netfang: idja@hunathing.is
Sími 451-2926