
Heimilisfang: Hvammstangabraut 5
Opnun: 9-16
Sími: 455-2400
Netfang: felagsmalastjori@hunathing.is
Félagsmálastjóri er Henrike Wappler, félagsráðgjafi og hefur hann aðsetur að Hvammstangabraut 5 á Hvammstanga. Starfsmaður félagsþjónustu er
Tímapantanir eru í síma 455-2400 eða 846-2295. Einnig er hægt að hafa samband við félagsmálastjóra með tölvupósti, netfang hans er felagsmalastjori@hunathing.is
Félagsþjónusta Húnaþings vestra hefur það að markmiði að "tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar" (Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, 1991 nr. 40). Félagsþjónusta Húnaþings vestra veitir þjónustu aðstoð og ráðgjöf í tengslum við málaflokka eins og fjárhagsaðstoð, liðveislu, félagslega heimaþjónustu, dagvist aldraðra, málefni fatlaðra og jafnréttismál. Félagsþjónustan veitir auk þess félagslega ráðgjöf, en í því getur falist að veita stuðning vegna félagslegra og persónulegra vandamála eða gefa upplýsingar um félagsleg réttindamál.
Tengd skjöl
Jafnréttisáætlun 2011-2015
Reglur um heimilishjálp
Reglur um fjárhagsaðstoð hjá Húnaþingi vestra