6. febrúar 2012
 Starfsemi
  

 Stjórnsýsla
  

 Fréttir
ágú.24
Umhverfiviðurkenningar Húnaþings vestra 2010
24.8.2010 10:44:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

Umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra 2010

Umhverfisviðurkenningar voru veittar s.l föstudag á Cafe Sirop á Hvammstanga.
Árlega veitir Húnaþing vestra þeim aðilum viðurkenningu sem þótt hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða/svæða sinna. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið. Veittar eru viðurkenningar í flokki fyrirtækja- og stofnanalóða, einkalóða og fyrir fallegasta bændabýlið. Misjafnt getur verið frá ári til árs í hvaða flokkum viðurkenningar eru veittar.
Í nefndinni eru; Jóhannes Erlendsson, Sigríður Hjaltadóttir, Erla Björg Kristinsdóttir og Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri sem jafnframt er starfsmaður nefndarinnar.
 

Allt um umhverfisviðurkenningar hér til hliðar undir umhverfismál.

 
Barkarstaðaskógur, fékk viðurkenningu fyrir  gróskumikla og skemmtilega  skógrækt á afar fallegum stað í Miðfirði en það er Ragnar Benediktsson og hans afkomendur sem eiga landið og rækta það og hirða.


Ásbraut 2 fékk viðurkenningu fyrir fallega og gróna einkalóð, vel hefur verið hugað að hirðingu lóðarinnar. Eigendurnir eru garðyrkjufræðingurinn Fjóla Eggertsdóttir og Garðar Hannesson.


Núpsdalstunga fékk viðurkenningu fyrir afar snyrtilega og fallega bújörð. Mikið hefur verið plantað af trjám á jörðinni. Sólrún Þorvarðardóttir og Börkur Benediktsson eru eigendur Núpsdalstungu.

Leó Örn Oddviti, Sólrún og Börkur Núpsdalstungu, Garðar og Fjóla Ásbraut 2, Ragnar f/h Barkarstaðaskógs, Jóhannes og Erla Björg úr dómnefndinni.
 

  

 Nýjar fundargerðir
  

 Fundargerðir
  

Leit á vefnum

Húnaþing vestra S: 455-2400 og fax 455-2409
  Innskráning