6. febrúar 2012
 Starfsemi
  

 Stjórnsýsla
  

 Fréttir
jan.6 6.1.2012 12:49:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

 

Samkvæmt sorphirðudagatali verður sorp hirt á Hvammstanga og Laugarbakka nk. mánudag. Við viljum minna íbúa á að moka snjó frá sorpílátum eins og þörf krefur til að halda greiðfærri leið að þeim.

Í einhverjum tilfellum var því miður ekki hægt að hirða sorp á sveitarbæjum vegna snjóþyngsla.

Hér má sjá sorphirðudagatal 2012

 

jan.5 5.1.2012 14:54:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

Kertaafgöngum er hægt að skila til Iðju, Brekkugötu 14 (neðri hæð), hægt er að skilja poka eftir fyrir utan dyrnar ef enginn er á staðnum. Þar verða þau brædd upp og notuð til að gera ný kerti. Vaxið er gott hráefni til endurvinnslu sem við ættum ekki að láta fara til spillis. Síminn í Iðju er: 451-2926

jan.3 3.1.2012 13:19:00 : Helena Halldórsdóttir

Laust er starf við afleysingu í íþróttamiðstöð fram að sumarleyfum. Unnið er aðra hverja helgi og öll fimmtudagskvöld.

meira...
jan.3 3.1.2012 12:41:00 : Helena Halldórsdóttir

 

Um áramót þarf að endurnýja allar umsóknir um húsaleigubætur.
 
meira...
jan.3 3.1.2012 10:21:00 : Helena Halldórsdóttir

 

Auglýsing um deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu að Ósum Vatnsnesi.

Fornleifaskráning vegna deiliskipulags á Ósum Húnaþingi vestra

Ósar Vatnsnesi deiliskipulagsuppdráttur

jan.3 3.1.2012 10:07:00 : Helena Halldórsdóttir

 

Deiliskipulag Kirkjuhvammur -útivistarsvæði. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Kirkjuhvammi.

Uppdráttur Kirkjuhvammur

Greinargerð Kirkjuhvammur

jan.3 3.1.2012 09:47:00 : Helena Halldórsdóttir

Laust er til umsóknar tímabundið starf skólaliða við Grunnskóla Húnaþings vestra.   Um er að ræða 50% starf. Vinnudagar eu ½ þriðjudagur en 8 - 16 fimmtudaga og föstudaga. 

 

meira...
des.30 30.12.2011 11:06:00 : Helena Halldórsdóttir

 

Fréttatilkynning sýslumannsins á Blönduósi
vegna sameiningar Bæjarhrepps og
Húnaþings vestra.
 
Hinn 1. janúar 2012 sameinast sveitarfélögin Bæjarhreppur og Húnaþing vestra og mun nafn hins sameinaða sveitarfélags verða eftirleiðis; Húnaþing vestra.
 
 
meira...
des.30 30.12.2011 10:38:00 : Helena Halldórsdóttir

Á undanförnum vikum hefur talsvert borið á lausagöngu hunda á Hvammstanga. Með auglýsingu þessari eru hundaeigendur á Hvammstanga minntir á ákvæði

meira...
des.29 29.12.2011 14:39:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

Hirða Höfðabraut 34 verður opin á gamlaársdag frá klukkan 11:00-12:00

Minnum á að lúgur á griðingu Hriðu eru opnar allann sólarhringinn og þar er hægt að skila eftirtöldu, gjaldfrítt:

• Pappír dagblöð, tímarit, auglýsingabæklingar, skrifstofupappír, umslög og prentpappír (ekki brúna bréfpoka)
• Umbúðir úr sléttum pappa t.d fernur, morgunkornspakkar, kartonpappír, brúnir bréfpokar, hólkar innan úr salernispappír,eldhúspappír og eggjabakkar úr pappa.
• Stíft plast; sjampóbrúsar, tómatssósubrúsar, skyrdósir, plastbakkar undan matvælum, tappar og lok (skilist lausir ekki á skrúfaðir)
• Mjúkt plast; Plastfilma, plastpokar ýmis konar t.d utan af brauði, harðfisk og fl.
• Bylgjupappi pappakassar, pizzakassar og fl.
• Málmar; niðursuðudósir, álpappír, álbox af sprittkertum, lok og tappar og fl.
• Gler/póstulín smærri hlutir s.s brotnir blómapottar, glerbrot og fl.

Úrgangur skal vera án aðskotahluta og skola og hreinsa þarf burt allar efnaleifar áður en skilað er í lúgur.
Brjótið allar pappaumbúðir saman svo þær taki minna pláss og fjarlægið umbúðir úr plasti sem geta leynst inni í þeim.

  

 Nýjar fundargerðir
  

 Fundargerðir
  

Leit á vefnum

Húnaþing vestra S: 455-2400 og fax 455-2409
  Innskráning