22. febrúar 2012
 Starfsemi
  

 Stjórnsýsla
  


 


 Fréttir
maí18 18.5.2011 14:55:00 : Helena Halldórsdóttir

Breyttur opnunartími hjá bóka og skjalasafni tekur gildi frá og með 19 maí.

Mánudaga –föstudaga 

10,00-12.00  og 13,00-17.00
 

meira...
maí16 16.5.2011 14:37:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

Húnaþing vestra hefur í hyggju að leigja út garðlönd til matjurtaræktunar í sumar ef áhugi reynist meðal íbúa. Garðlöndin yrðu staðsett á ásnum fyrir ofan Garðaveg Hvammstanga, á sama stað og skólagarðarnir eru. Reitirnir afhendast plægðir í lok maí. Sveitarfélagið sér um að tæta jarðvegin en að öðru leyti verður verkefnið á ábyrgð þátttakenda. Leigugjald árið 2011 er kr. 1.000 fyrir 20 fm. skika. Athugið að vatn til vökvunar er á staðnum.
Umsóknir og frekari upplýsingar um garðlöndin er á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400 og einnig er hægt að senda póst á netfangið umhverfisstjóri@hunathing.is

maí13 13.5.2011 10:50:00 : Helena Halldórsdóttir

 

Svo vel megi takast til við gatnasópunina þá eru íbúar á Hvammstanga og Laugarbakka hvattir til að leggja bílum sínum þannig að þeir hamli ekki sópuninni. Einnig má benda þeim á sem vilja nýta tækifærið og hreinsa grjót af (steyptum) innkeyrslum við heimili sín að gera það fyrir 17. maí.
Tæknideild
meira...
maí12 12.5.2011 14:01:00 : Helena Halldórsdóttir

Vegna fundar starfsmanna verður Ráðhúsinu lokað þriðjudaginn 17. maí kl. 15:00.

Sveitarstjóri

maí10 10.5.2011 14:34:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

Dagana 18.- 25. maí nk.eru íbúar Húnaþings vestra hvattir til að taka höndum saman við að fegra og snyrta lóðir/landareignir sínar fyrir sumarið og gera með því sveitarfélagið fallegra og snyrtilegra.
Í tilefni af hinum ýmsu viðburðum sem haldnir verða í sveitarfélaginu í sumar skulum við öll spýta í lófana og vera samtaka í hreinsuninni, verum stolt af því að bjóða gestum að sækja okkur heim.

meira...
maí6 6.5.2011 09:29:00 : Helena Halldórsdóttir

Almennur kynningarfundur á LANDSMÓTI UMFÍ 50+ verður haldinn miðvikudaginn 11. maí nk. í Félagsheimlinu á Hvammstanga kl. 20:30 Fundurinn er opinn öllu íbúum Húnaþings vestra. Þeir sem stunda verslun og ferðaþjónustu eru sérstaklega hvattir til að mæta á fundinn. Sjá auglýsingu hér

maí4 4.5.2011 11:30:00 : Helena Halldórsdóttir

Meðfylgjandi er frétt frá Menningarráði Norðurlands vestra um fyrri úthlutun menningarstyrkja 2011

maí3 3.5.2011 12:19:00 : Ína Björk Ársælsdóttir

Húnaþing vestra mun starfrækja vinnuskóla í sumar fyrir 13-16 ára ungmenni. Hlutverk vinnuskólans er að kenna þeim almenn vinnubrögð og örva þau til hollrar útiveru.

15 og 16 ára ungmenni(fædd 1995 og 1996) fá vinnu 6 ½  tíma á dag í 8-10 vikur.

14 ára ungmenni(fædd 1997) fá vinnu 3 ½ tíma á dag fyrir hádegi í 8 vikur.

13 ára ungmenni(fædd 1998) fá vinnu 3 ½ tíma á dag fyrir hádegi í 4 vikur.

Vinnuskólinn hefst Miðvikudaginn 1.júní.
 

meira...
maí2 2.5.2011 13:28:00 : Helena Halldórsdóttir

183. fundur sveitarstjórnar Húnaþings vestra verður haldinn fimmtudaginn 5. maí 2011  kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins.

meira...
apr.29 29.4.2011 11:42:00 : Helena Halldórsdóttir

Starfskraft vantar við leikjanámskeið í tvær vikur í júní. ½ starf fyrir hádegi. Umsókn leggist í Ráðhús Húnaþings vestra f. 30. maí nk.

meira...
  

 Nýjar fundargerðir
  

 Fundargerðir
  

Boðgreiðslur

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Húnaþings vestra vegna boðgreiðslna gjalda hjá Húnaþingi vestra á Visa eða Mastercard
 

Leit á vefnum

Húnaþing vestra S: 455-2400 og fax 455-2409
  Innskráning