|
jún.6 |
6.6.2011 13:26:00 : Ína Björk Ársælsdóttir |
|
Sveitarstjórnarfundur.
184. fundur sveitarstjórnar Húnaþings vestra verður haldinn fimmtudaginn 9. júní 2011 kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins. meira...
|
| |
|
jún.1 |
1.6.2011 15:46:00 : Ína Björk Ársælsdóttir |
|
Sprotasjóður valdi okkur
Hér ríkir hátíð, Ásgarður var að fá úthlutunn úr Sprotasjóði vegna þróunarverkefnis sem ber heitið Leikur er barna yndi. meira...
|
| |
|
jún.1 |
1.6.2011 15:42:00 : Ína Björk Ársælsdóttir |
|
Grænfánanum verður flaggað á Sumarhátíð
Starfsfólk Landverndar var hér í gær að taka út skólann okkar. Og vitið þið hvað, niðurstaðan er að Grænfánanum verður flaggað á Sumarhátíð 23. júní meira...
|
| |
|
maí30 |
30.5.2011 12:47:00 : Helena Halldórsdóttir |
|
Félagsþjónusta Húnaþings vestra - Starfsmaður óskast!
Hefur þú áhuga á að vinna skemmtilegt og krefjandi starf? Í boði er hlutastarf við liðveislu í Húnaþingi vestra í sumar.
Vinnutíminn frá kl. 13 – 17 virka daga – getur þó verið sveigjanlegur eftir samkomulagi. meira...
|
| |
|
maí27 |
27.5.2011 13:04:00 : Helena Halldórsdóttir |
|
Leikhópurinn Lotta sýnir glænýtt íslenskt leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö á Bangsatúni á Hvammstanga þann 15. júní klukkan 18. Þetta er fimmta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. meira...
|
| |
|
maí26 |
26.5.2011 10:50:00 : Ína Björk Ársælsdóttir |
|
Aðstaða til að skila flokkuðum endurvinnanlegum úrgangi utan opnunartíma Hirðu, hefur verið bætt til muna. Kör sem staðið hafa fyrir utan Hirðu hafa verið fjarlægð og útbúnir hafa verið skápar innan girðingar fyrir stórsekki. Utan á girðingunni þarf aðeins að opna lúgu til að skila flokkaða úrgangnum. Á hverri og einni lúgu eru gagngóðar upplýsingar um þann úrgangsflokk sem við á. Aðkeyrslan að lúgunum verður malbikuð seinna í sumar. Úrgangsflokkarnir eru 7 og eru:
1. Blöð/tímarit
2. Fernur/sléttur pappi
3. Mjúkt plast
4. Hart plast
5. Bylgjupappi
6. Málmar
7. Gler/steinefni
Ef koma þarf með stærri farma af ofantöldum úrgangsefnunum, skal koma þeim til Hirðu á opnunartíma.
Flokkum og skilum fyrir betri framtíð :)
|
| |
|
maí20 |
20.5.2011 11:46:00 : Ína Björk Ársælsdóttir |
|
vegna hreinsunarviku sem nú er hafin í Húnaþingi vestra, minnum við á auka opnunartíma Hirðu um helgina sem verður:
Föstudag 20.maí frá kl. 11:00-19:00
Laugardag 21. maí frá kl. 11:00-16:00 og
sunnudag 22. maí frá kl. 11:00-16:00.
Einnig má minna á að starfsmenn áhaldahúss og vinnuskóla sjá um að fjarlægja garðaúrgang sem settur er út fyrir lóðarmörk á Laugarbakka og Hvammstanga mánudaginn 23. maí og þriðjudaginn 24. maí. æskilegt er að halda greinum, grjóti og gróðurleifum aðskildum. Ef veður hamlar því að ekki verður hægt að setja garðaúrganginn út fyrir lóðamörk er hægt að hafa samband við skrifstofu og láta vita hvar úrgangurinn er staðsettur í skjóli á lóðinni.
|
| |
|
maí18 |
18.5.2011 14:55:00 : Helena Halldórsdóttir |
|
Breyttur opnunartími hjá bóka og skjalasafni tekur gildi frá og með 19 maí.
Mánudaga –föstudaga
10,00-12.00 og 13,00-17.00
meira...
|
| |
|
maí16 |
16.5.2011 14:37:00 : Ína Björk Ársælsdóttir |
|
Húnaþing vestra hefur í hyggju að leigja út garðlönd til matjurtaræktunar í sumar ef áhugi reynist meðal íbúa. Garðlöndin yrðu staðsett á ásnum fyrir ofan Garðaveg Hvammstanga, á sama stað og skólagarðarnir eru. Reitirnir afhendast plægðir í lok maí. Sveitarfélagið sér um að tæta jarðvegin en að öðru leyti verður verkefnið á ábyrgð þátttakenda. Leigugjald árið 2011 er kr. 1.000 fyrir 20 fm. skika. Athugið að vatn til vökvunar er á staðnum.
Umsóknir og frekari upplýsingar um garðlöndin er á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400 og einnig er hægt að senda póst á netfangið umhverfisstjóri@hunathing.is
|
| |
|
maí13 |
13.5.2011 10:50:00 : Helena Halldórsdóttir |
|
Svo vel megi takast til við gatnasópunina þá eru íbúar á Hvammstanga og Laugarbakka hvattir til að leggja bílum sínum þannig að þeir hamli ekki sópuninni. Einnig má benda þeim á sem vilja nýta tækifærið og hreinsa grjót af (steyptum) innkeyrslum við heimili sín að gera það fyrir 17. maí.
Tæknideild meira...
|